
Árbæjarskóli
Kennari á yngsta- og miðstigi í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Við auglýsum eftir kennara á yngsta- og miðstig. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill bætast við mjög gott kennarateymi í góðu og jákvæðu umhverfi.Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 108 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu í samráði við skólastjórnendur og árgangateymi.
- Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
- Hæfni í samskiptum.
- Faglegur metnaður.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur2. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður frístundamála
Fjarðabyggð

Umsjónarkennarar í Salaskóla!
Salaskóli

Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Kennarastöður við Nesskóla
Nesskóli

Sérkennari við Eskifjarðarskóla
Eskifjarðaskóli

Kennara vantar við Eskifjarðarskóla
Eskifjarðaskóli

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Kennarastöður við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Leikskólakennari við leikskólann Dalborg, Eskifirði
Leikskólinn Dalborg

Sérkennsla/stuðningur
Leikskólinn Hraunborg