
66°North
Sjóklæðagerðin hf. betur þekkt sem 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.
Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.
Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°Norður en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.
Í dag starfa um 400 manns hjá 66°Norður og starfar fyrirtækið í fjórum löndum, á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi.

Gjaldkeri í fjármáladeild 66°Norður
66°Norður leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi í hlutverk gjaldkera í fjármáladeild fyrirtækisins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið er til 6 mánaða með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Áhugasöm eru hvött til að sækja um sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegri sjóðsstýringu og greiðslum.
- Bankasamskipti og framkvæmd greiðslna.
- Gerð og eftirfylgni sjóðstreymisáætlana.
- Eftirlit með lausafjárstöðu.
- Umsjón með innheimtu og eftirfylgni krafna.
- Samstarf við aðrar deildir fyrirtækisins og náið samstarf við bókara.
- Önnur tilfallandi verkefni innan fjármáladeildar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í bókhaldi og fjármálum.
- Góð tölvukunnátta og þekking á bókhaldskerfum kostur,
- Góð greiningarhæfni og hæfni til að vinna með töluleg gögn.
- Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi.
Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Miðhraun 11, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
Dynamics AXGjaldkeriNákvæmniSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)


