
Tengir hf.
Tengir hf. er fjarskiptafyrirtæki sem á og rekur ljósleiðaranet. Fyrirtækið var stofnað á Akureyri árið 2002, með það að markmiði að byggja upp ljósleiðaranet á Eyjafjarðarsvæðinu. Uppbygging ljósleiðaranets Tengis hefur verið stöðug frá upphafi en fyrstu árin var áhersla lögð á að leggja ljósleiðara þar sem mest þörf var fyrir mikla flutningsgetu, s.s. í stofnanir sveitafélaga, framhaldsskóla, háskóla og sjúkrahús.
Starfssvæði Tengis hefur stækkað jafnt og þétt og hefur markvisst verið unnið að uppbyggingu á framtíðar fjarskiptaneti. Í dag nær fjarskiptanet Tengis um nánast allt norðausturland, auk þess að Tengir á ljósleiðaranet um Vopnafjarðarhrepp og á Vatnsnesi.
Ljósleiðaranet Tengis liggur því um fjölmörg sveitarfélög; Akureyrarbæ, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahrepp, Húnaþing vestra, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Skútustaðahrepp, Svalbarðsstrandarhrepp, Tjörneshrepp, Vopnafjarðarhrepp og Þingeyjarsveit. Flestir þéttbýliskjarnar þessarra sveitarfélaga hafa verið tengdir við ljósleiðaranet Tengis.
Markmið Tengis er að öllum íbúum á starfssvæði félagsins muni standa til boða að nýta sér framúrskarandi fjarskipti um ljósleiðaranet í eigu heimamanna sem rekið er af heimamönnum. Ljósleiðari Tengis er því rekinn sem ,,opið kerfi” - sem þýðir að allar þjónustuveitur og fjarskiptafélög geta nýtt ljósleiðara Tengis til að bjóða viðskiptavinum upp á internetþjónustu.

Sölufulltrúi Akureyri
Ert þú með framúrskarandi þjónustulund og hefur áhuga á fjarskiptamálum? Þá gætum við hjá Tengir verið að leita að þér! Okkur vantar öflugan liðsauka til að starfa í sölumálum félagsins. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, m.a. umsjón ljósleiðarapantana, samskipti við viðskiptavini, símsvörun ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Vinnutími er frá kl. 8-16 mán-fim og til 8-15:15 á föstudögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sölustörf og umsýsla með pantanir
- Umsjón og skráningar á ljósleiðarapöntunum
- Samskipti og upplýsingagjöf til viðskiptavina
- Reikningagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi þjónustulund
- Jákvæðni
- Frumkvæði
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Vandvirkni
- Mjög gott tölvulæsi og tækniáhugi
- Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur3. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Fjölnisgata 6, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónusta og sala hjá DS Lausnum
DS lausnir

Skrifstofustjóri
Stekkjaskóli

Sumarstarf á skrifstofu
Garðlist ehf

Sumarafleysing - Móttökuritari
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Innkaupafulltrúi
Dynjandi ehf

Gjaldkeri í reikningshaldi
Kópavogsbær

Þjónustufulltrúi
Fura ehf.

Þjónustufulltrúi - Tæknideild
Fastus

Leitum að öflugum bókara til liðs við okkur
Six Rivers Iceland ehf.

Framkvæmdastjóri Skautasambands Íslands
Skautasamband Íslands

Þjónustufulltrúi - sumarstarf
N1

Sala, bókanir og umsýsla hópa - Ferðaþjónusta
GoNorth