Borgarleikhúsið
Borgarleikhúsið
Borgarleikhúsið

Deildarstjóri leiksviðsdeildar

Borgarleikhúsið leitar að leiksviðsstjóra sem býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun og skipulagi á viðburðum tengdum menningar- og skemmtanaiðnaði. Um er að ræða stjórnendastöðu á lifandi vinnustað, með fjölbreyttum verkefnum og viðburðum. Við leitum að stjórnanda sem hefur ríka skipulags- og samskiptagáfu, sem er til í að stýra flóknum og krefjandi verkefnum þvert á deildir leikhússins.

Leikssviðsstjóri ber ábyrgð á og hefur yfirumsjón með öllum leiksviðum Borgarleikhússins. Starfið felur í sér stjórnun og mannaforráð, undirbúning fyrir framleiðslu leiksýninga, ásamt yfirumsjón með útfærslum og lausnum á tæknilegum viðfangsefnum í samstarfi við leikmyndahönnuði, leikstjóra og aðra listræna stjórnendur. Leikssviðsstjóri sinnir jafnframt verkstjórn og skipuleggur allt starf við leikmyndir og skiptingar á leiksviðum Borgarleikhúss. Viðkomandi ber ábyrgð á sýningarkeyrslu sviðsdeildar á sýningartíma, fylgir eftir frágangi og umsjón sviðsmynda auk þrifa og viðhalds leiksviða og leiktæknibúnaðs.

Deildarstjóri leiksviðsdeildar skipuleggur vinnutilhögun og vinnur að framkvæmd æfinga- og sviðsvinnu leiksýninga, auk þess sem viðkomandi vinnur við útleigur og aðra viðburði í leikhúsinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Yfirumsjón og skipulag leiksviða Borgarleikhúss, þ.m.t. gerð og eftirfylgni tímaáætlana. Leiksviðsstjóri veitir öllum leiksviðum leikhússins forstöðu og tryggir að starfsemi leiksviðanna sé fyrsta flokks.
•    Að vinnubrögð leiksviðsdeildar séu öguð, nákvæm og metnaðarfull og að öll starfsemi leiksviðsdeildar sé til fyrirmyndar m.t.t. gæða, viðmóts og skipulags.
•    Undirbúningur og uppsetning sviðsmynda fyrir æfingar og sýningar, skiptingar og viðhald sviðsmynda á æfinga- og sýningatíma, auk frágangs á sviðsmyndum að æfingum og sýningum loknum.
•    Að öll vinna sem sem snýr að leiksviðum leikhússins og tæknilegum útfærslum sé klár fyrir hverja sýningu og í samræmi við óskir listrænna stjórnenda.
•    Að öryggismálum á leiksviðum leikhússins sé sinnt af kostgæfni. Leiksviðsstjóri ber ábyrgð á gæðum og öryggi tæknilegra atriða, ásamt því að bera ábyrgð á úrlausnum tæknilegra vandamála er upp geta komið.
•    Yfirumsjón með viðhaldi og þrifum sviðsbúnaðar og leiksviða.
•    Að starfsemi leiksviðsdeildar standist fjárhags- og framleiðsluáætlanir.
•    Að rekstur leiksviðsdeildar sé til fyrirmyndar hvað varðar aðstöðu, umgengni og skipulag.
•    Að viðhalda jákvæðum starfsanda og samskiptum við starfsfólk annarra deilda og listræna stjórnendur sýninga.

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Menntun sem nýtist í starfi, eins og til dæmis verkefnastjórnun, almenn stjórnun og/eða tæknimenntun eða iðnmenntun.
•    Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
•    Þekking á viðburðahaldi er kostur

Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur29. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Listabraut 3, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.VaktaskipulagPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Viðburðastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar