

Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ
Alþýðusamband Íslands leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa sem verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Hlutverk verkefnisstjóra verðlagseftirlits er að halda utan um starfsemi verðlagseftirlits ASÍ fjalla sem fjallar um neytendamál, veita fyrirtækjum á markaði og opinberum aðilum aðhald með góðri upplýsingagjöf til almennings um verðlag og verðlagsþróun. ASÍ leggur áherslu á að umsækjandi hafi faglegan metnað, sýni frumkvæði og geti starfað sjálfstætt en eigi jafnframt auðvelt með að vinna í teymi. Viðkomandi sé fær í mannlegum samskiptum og eigi auðvelt með að tjá sig í ræðu og riti. Um er að ræða fullt starf. Verkefnastjóri verðlagseftirlits heyrir undir hagsvið innan ASÍ.
Undirbúningur og framkvæmd verðkannana og úttekta hjá fyrirtækjum, þjónustuaðilum og hinu opinbera.
Greining og tölfræðileg úrvinnsla gagna.
Upplýsingaöflun, greining og miðlun efnis um verðlags- og neytendamál.
Frétta- og greinarskrif.
Kynningarmál og fræðsla.
Samskipti við verðtökufólk verðlagseftirlits ASÍ, fulltrúa fyrirtækja og stofnana og aðildarfélög og landssambönd innan ASÍ.
Þátttaka í málefnanefndum ASÍ.
Menntun og/eða reynsla sem nýtist við greiningu, gagnaúrvinnslu og fréttaskrif.
Færni í og/eða reynsla af gagnavinnslu og tölulegri úrvinnslu.
Kunnátta af forritun og gagnavinnslu, t.d. R, Python og SQL er kostur
Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Frumkvæði, greiningarhæfni, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð.
Færni í mannlegum samskiptum. Geta til að vinna undir álagi.
Íslenska
Enska










