Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Umsjónarfólk í fyrirlögn prófa fyrir alþjóðlegu menntarannsóknina TIMSS

Laus eru til umsóknar 10 tímabundin störf umsjónarfólks hjá Menntavísindastofnun Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Verkefni umsjónarfólks felast í framkvæmd á forprófun fyrir alþjóðlegu menntarannsóknina TIMSS (e. Trends in International Mathematics and Science Study), á Íslandi. Rannsóknin metur námsárangur nemenda í 5. og 9. bekk í stærðfræði og náttúrufræði um allan heim og fer forprófunin fram í 30 grunnskólum.

Störfin eru er tímabundin og verða unnin á hefðbundnum skólatíma á tímabilinu frá 9. apríl til 7. maí 2026. Greitt verður fyrir störfin í tímavinnu. Störfin henta fólki sem hefur áhuga á að kynnast vettvangi skólanna og taka þátt í stóru alþjóðlegu rannsóknarverkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hafa umsjón með prófstofu, móttaka nemenda og utanumhald nemendahópsins

  • Kynna þátttakendum könnunarinnar staðlaðar leiðbeiningar og útskýra fyrir þeim framkvæmdina skýrt og greinilega

  • Aðstoða þátttakendur við innskráningu í rafrænt prófkerfi

  • Hafa yfirsýn í prófstofu á meðan fyrirlögn fer fram, tryggja árangursríka, faglega fyrirlögn og góðan vinnufrið

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með börnum eða unglingum

  • Örugg og fagleg framkoma

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

  • Góður lesskilningur í ensku

  • Almenn ökuréttindi

  • Sjálfstæði, stundvísi og góð almenn tölvukunnátta

Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hagatorg 1, 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar