

Háskólamenntaður starfsmaður á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Við leitum eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa á erfða- og sameindalæknisfræðideild (ESD) Landspítala.
Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í öflugu þverfaglegu teymi. Deildin heyrir undir rannsóknarþjónustu og þar fara fram greiningar, vísindarannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í faginu. ESD veitir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu og er eina deild sinnar tegundar á Íslandi. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi og metnaði. Vinnutími er frá kl. 8-16, virka daga og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska
Enska























































