

Geislafræðingur - Áhugavert starf á Brjóstamiðstöð
Býrðu yfir hugmyndaauðgi og ertu til í að takast á við krefjandi verkefni?
Við óskum eftir metnaðarfullum geislafræðingi í okkar góða teymi á Brjóstamiðstöð. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og gott starfsumhverfi. Mjög góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi og styðja við umbætur í þjónustu við skjólstæðinga okkar.
Brjóstamiðstöð Landspítala sinnir læknisfræðilegri myndgreiningu og geislavörnum. Unnið er í dagvinnu virka daga. Starfshlutfall sem og upphaf starfa er samkvæmt samkomulagi en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska
Enska




























































