Félagsráðgjafi í félagsráðgjafaþjónustu
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum félagsráðgjafa til starfa á Landspítala. Viðkomandi þarf að búa yfir færni til að vinna að lausnum og hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu.
Um er að ræða faglega krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir félagsráðgjafa sem hafa áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi.
Landspítali býður upp á góða aðlögun fyrir nýútskrifaða félagsráðgjafa sem og reyndari með markvissri handleiðslu og fræðslu. Á Landspítala eru fjölbreytt tækifæri til sí- og endurmenntunar.
Á Landspítala starfa um 50 félagsráðgjafar í þverfaglegum teymum sem sinna margþættri þjónustu við sjúklinga á mismunandi deildum. Landspítali er fjölskylduvænn vinnustaður og býður upp á heilsueflandi vinnuumhverfi, samgöngusamninga og 36 stunda vinnuviku.
Ráðning er frá 1. maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa
Áhugi á félagsráðgjöf á heilbrigðissviði
Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi
Reynsla af vinnu með fjölskyldum er kostur
Reynsla og þekking á félagslegum úrræðum og samstarfi stofnana
Hugarfar þar sem leitast við að ná stöðugum árangri
Góð tölvufærni
Frumkvæði, framsýni og lausnamiðuð hugsun í margbreytilegu umhverfi
Færni til að nálgast áskoranir af jákvæðni
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoða sjúklinga og aðstandendur við að leita félagslegra réttinda
Samvinna við aðrar stofnanir í heilbrigðis- og félagsþjónustu
Fræðsla til sjúklinga, aðstandenda, samstarfsfólks og starfsfólks annarra stofnana
Stuðningur við sjúklinga og aðstandendur við að takast á við breytingar sem verða í kjölfar veikinda
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þátttaka í þróunarverkefnum sem efla þjónustu við sjúklinga
Milliganga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna samkvæmt lögum
Stuðla að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis