

Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á kvenlækningadeild 21A á Landspítala. Í boði er spennandi, krefjandi og líflegt starfsumhverfi, góður starfsandi og fjölbreytt tækifæri til faglegrar þróunar.
Á deildinni starfar samhent teymi starfsfólks sem veitir fjölþætta heilbrigðisþjónustu allan sólarhringinn. Kvenlækningadeild er annars vegar göngudeild, bráðamóttaka og aðgerðarstofa og hins vegar dag- og legudeild. Deildin sinnir skjólstæðingum með góðkynja og illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum sem og skjólstæðingum frá öðrum sérgreinum almennra skurðlækninga. Þá sinnir deildin bráðatilvikum vegna kvensjúkdóma utan opnunartíma bráðaþjónustu kvennadeilda.
Starfshlutfall er frá 50-100% og er starfið laust frá 1. maí 2025 eða eftir samkomulagi.
Íslenska




























































