
COWI
COWI er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki með höfuðstöðvar í Danmörku og yfir 7.500 starfsmenn sem vinna að um 10.000 verkefnum að staðaldri víða um heim. Í samvinnu við viðskiptavini vinnum við að því að móta þjónustu og lausnir á sviði sjálfbærni sem bæta lífsgæði fólks og komandi kynslóða. Þjónustusviðið okkar nær yfir verkfræði, arkitektúr, orku og umhverfismál.
Við trúum því að velsæld stuðli að betri frammistöðu og að betri frammistaða ýti undir vellíðan. Ef þú hefur áhuga á að ganga til liðs við okkur munt þú starfa með fólki sem er ávallt reiðubúið að rétta fram hjálparhönd. Okkar helsta hvatning er að skapa vinnustað framtíðarinnar; umhverfi þar sem fólk fær að vaxa og dafna. Og þótt að verkefnin okkar séu stór og jafnvel alvarleg þá tökum við okkur sjálf mátulega hátíðlega.
Ef þú gengur til liðs við okkur verður þú hluti af alþjóðlegu samfélagi sérfræðinga þar sem gagnkvæm miðlun á þekkingu fer fram. Þú færð einnig tækifæri til þess að vinna þvert á landamæri og breyta áskorunum í sjálfbærar lausnir. Auk þess er starfsþróun mikilvægur þáttur sem við sinnum vel fyrir hvern og einn starfsmann. Allt þetta stuðlar að því að þú fáir að þróast og þroska nýja hæfni og við fáum verðmætan starfskraft með haldbæra þekkingu. Þannig erum við öll í fararbroddi grænna umskipta.

Sérfræðingur í umhverfismálum
Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis?
Helstu verkefni og ábyrgð
COWI Íslandi leitar að viðbót í umhverfis og sjálfbærni teymið okkar sem fæst við fjölbreytt og spennandi verkefni sem snúa að umhverfismati, skipulagi, vistvottunum, bættum byggingum, kortagerð ofl. Bakgrunnur teymisins er fjölbreyttur og svo eru einnig boðleiðir stuttar í fjölbreytt þekkingarnet innan samstæðunnar.
Helstu verkefni sem þú munt fást við
- Aðstoð við áhrifamat fyrir vatnshlot
- Vinna við umhverfismat og náttúrufarsúttektir
- Vettvangsvinna við söfnun upplýsinga, sýnatöku og umhverfismælingar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun við hæfi. Einkum er hort til menntunar í líffræði en önnur sérfræði menntun kemur líka til greina.
- Reynsla af gerð umhverfismata og sýnatöku er mikill kostur.
- Færni í skýrslugerð og að tjá sig á rituðu máli.
- Góð íslensku og ensku kunnátta.
- Jákvætt viðhorf og frumkvæði í starfi.
- Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
Fríðindi í starfi
Við bjóðum líka uppá
- Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika samhliða vinnu á starfsstöð.
- Öflugt mötuneyti með morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu.
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrki.
- Starfsmannafélag með fjölbreyttum viðburðum yfir árið.
- Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi.
- Starfsþróunarmöguleika innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræna þjálfun hjá COWI Academy.
- Árlegt heilsufarsmat.
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur16. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðVerkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (11)

Sérfræðingur í matvælaörverufræði
Matís ohf.

Sumarstarf í seiðaeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur á meinafræðideild
Landspítali

Jarðeðlisfræðingur (Geophysicist)
Reykjavik Geothermal

Jarðfræðingur eða jarðefnafræðingur (Geologist or Geochemist)
Reykjavik Geothermal

HSE SÉRFRÆÐINGUR
atNorth

Sérfræðingur í innivist
EFLA hf

Sumarstörf fyrir háskólanema í jarðvísindum og verkfræði
ÍSOR

Sumarstarfsmaður í GAJA, Gas- og jarðgerðarstöð SORPU
SORPA bs.

Greinandi á sviði sjálfbærnimála
Reitun ehf

Sérfræðingur í vatnamálum og samskiptastjóri LIFE Icewater
Umhverfis- og orkustofnun