

Almennur læknir - Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp
Laus er til umsóknar staða almenns læknis við kvensjúkdóma og fæðingarhjálp á Landspítala. Tilvalið fyrir lækni sem hefur áhuga á kvensjúkdómum og fæðingarhjálp og vill kynnast starfinu betur. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. apríl 2026. Um er að ræða tímabundið starf í 6-12 mánuði, eða eftir nánara samkomulagi. Um dagvinnu er að ræða ásamt vaktþjónustu. Tekið skal fram að auglýst staða telst hvorki til formlegs sérnáms né sérfræðiréttinda á Íslandi eða í öðrum Evrópuríkjum.
Við kvensjúkdómalækningar og fæðingarhjálp starfar þverfaglegt teymi sérfræðilækna og almennra lækna í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.
Íslenska

























































