Grundarheimilin
Grundarheimilin
Grundarheimilin

Grundarheimilin - Læknir

Grundarheimilin óska eftir að ráða metnaðarfullan og ábyrgan lækni til starfa. Starfið felur í sér læknisþjónustu við íbúa á heimilunum Grund, Mörk og Ás.

Starfið er fyrst og fremst unnið á dagvinnutíma, en lækni stendur einnig til boða að taka gæsluvaktir eftir nánara samkomulagi. Í boði er bæði hluta- og fullt starf og er starfshlutfall samkomulagsatriði.

Grundarheimilin eru fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa um 700 manns. Lögð er áhersla á góðan starfsanda, faglegt samstarf og hvetjandi starfsumhverfi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í þverfaglegu teymi heilbrigðisstarfsfólks, þar sem vönduð þjónusta og fagmennska eru í forgrunni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Læknisumsjón íbúa.
  • Mat, greining, meðferð og eftirlit sjúkdóma.
  • Lyfjarýni og endurskoðun lyfjameðferðar.
  • Yfirferð rannsóknarniðurstaðna og eftirfylgd.
  • Samstarf við aðstandendur og þátttaka í fjölskyldufundum eftir þörfum.
  • Þátttaka í teymisfundum og þróun starfseminnar.
  • Möguleg þátttaka í gæsluvöktum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi.
  • Sérfræðimenntun er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Hæfni til að starfa sjálfstætt og sýna frumkvæði.
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til teymisvinnu.
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi.

Starfað er eftir Eden hugmyndafræðinni, þar sem lögð er áhersla á lífsgæði, virðingu og einstaklingsmiðaða umönnun.

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi.

Starfshlutfall og ráðningarform er samkomulagsatriði.

Nánari upplýsingar veitir:

Bjarki Steinn, yfirlæknir

[email protected]

Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut 50, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar