Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Hvammi

Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Hvammi í Kópavogi. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nýsköpun og framþróun.

Til greina kemur að ráða áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið. Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sérnámslæknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og riturum. Heilsugæslunni Hvammier fyrst og fremst ætlað að veita íbúum Kópavogs þjónustu en allir eru velkomnir á stöðina. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu og kennslu nema. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi 
  • Sérfræðimenntun í heimilislækningum 
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð 
  • Reynsla af kennslu er æskileg 
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu 
  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki 
  • Góð almenn tölvukunnátta 
  • Íslenskukunnátta skilyrði 
  • Góð enskukunnátta 
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt2. mars 2026
Umsóknarfrestur12. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hagasmári 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LæknirPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar