
Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri er lifandi og metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 800 manns starfa saman í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Sjúkrahúsið gegnir lykilhlutverki í bráðaþjónustu og sérhæfðum meðferðum og er miðstöð læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs á Íslandi.
Á sjúkrahúsinu er veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónustu með áherslu á fagmennsku, umhyggju og samvinnu. Dýrmæt tækifæri til að vinna í sérhæfðu og fjölbreyttu starfsumhverfi og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á lærdóm, fagmennsku og mannlega nálgun.
Komdu í lið með okkur og taktu þátt í að gera Sjúkrahúsið á Akureyri enn betra! Við tökum vel á móti nýju starfsfólki.

Læknir á dagdeild lyflækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri
Við leitum að metnaðarfullum og ábyrgum lækni til starfa á dagdeild lyflækninga þar sem fagmennska, samvinna og vönduð þjónusta við sjúklinga er í forgrunni. Á dagdeildinni sinnum við fjölbreyttum verkefnum í góðri teymisvinnu, m.a. meðferð einstaklinga með blóðsjúkdóma, krabbamein, sérhæfðar lyfjagjafir og ýmsar rannsóknir. Einnig er um að ræða móttöku sjúklinga á göngudeild og þátttaka í þróun starfseminnar
Frábært tækifæri til að koma að uppbyggingu og þróun bráðadagdeildar!
Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu en möguleiki er á lægra starfshlutfalli.
Næsti yfirmaður er Guðni Arnar Guðnason, forstöðulæknir lyflækninga.
Af hverju Sjúkrahúsið á Akureyri?
- Stuttur ferðatími milli heimilis og vinnu
- Forgangur á leikskóla
- Heilsustyrkur
- Dagvinna
- Góð starfsaðstaða og sterk fagleg samvinna
- Lífsgæði og fjölskylduvænt samfélag
- Náttúruperla með frábærum möguleikum til útivistar
- Jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- Sterk liðsheild
- Góð laun samkvæmt gildandi kjarasamningi
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðtöl, símaeftirlit og læknisumsjón sjúklinga sem koma í lyfja- blóðhluta-, vökvagjöf eða aðra meðferð og rannsóknir á dagdeild
- Viðtöl og eftirlit sjúklinga á göngudeild lyflækninga í samvinnu við sérfræðilækna í lyflækningum
- Framkvæmd læknisfræðilegra inngripa
- Afgreiðsla tilvísana og ráðgjafabeiðna á dagdeild og göngudeild sem falla undir almennar lyflækningar
- Yfirferð á niðurstöðum myndgreininga-, blóð-, vefja- og annarra rannsókna
- Ýmis verkefni í samráði við sérfræðilækna og hjúkrunarfræðinga á dagdeild
- Þátttaka í þróun starfseminnar
- Þáttaka í vaktþjónustu í boði
- Þátttaka í teymisfundum og fræðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgilt íslenskt lækningaleyfi
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu og reynslu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Fríðindi í starfi
heilsustyrkur
forgangur á leikskóla
Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sálfræðingur í verktöku á Selfossi
Auðnast

Sérfræðilæknir í háls-, nef- og eyrnarlækningum
Landspítali

Sálfræðingur - FLIKK ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðiþjónusta
Landspítali

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Hvammi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítala
Landspítali

Sérfræðilæknir í kvenlækningateymi
Landspítali

Læknir óskast til starfa hjá SÁÁ
SÁÁ

Nemar í læknis- og hjúkrunarfræðum - sumarstörf
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Sálfræðingur í verktöku
Auðnast

Laboratory Physician/scientist - Genetics and Cytogenomics Laboratories (One year position)
Landspítali

Læknir/ vísindamaður - Tímabundið starf í 1 ár í klínískum erfða- og litningarannsóknum
Landspítali