

Sálfræðingur - FLIKK ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka
Viltu vera hluti af nýstárlegu samstarfi sem mótar framtíð geðheilbrigðismála á Íslandi?
Heilsubrú leitar að metnaðarfullum og jákvæðum sálfræðingi til að taka þátt í uppbyggingu og innleiðingu á fyrstu stafrænu lausninni fyrir börn með kvíðavanda á Íslandi. Þetta er einstakt tækifæri fyrir sálfræðing sem vill vinna á spennandi vettvangi þar sem klínísk vinna og nýsköpun mætast.
FLIKK er þróað í öflugu alþjóðlegu samstarfi Háskólans í Reykjavík, tæknifyrirtækisins Bitjam og Háskólans í Oxford og stendur fyrir ForeldraLausn og Internet meðferð fyrir Kvíðna Krakka og er fyrir börn á aldrinum 5-12 ára. Markmið FLIKK er að kenna foreldrum aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíðavanda og auka aðgengi að árangursríkri meðferð.
Starfið er innan Heilsubrúar og unnið í nánu samstarfi við rannsóknarteymi FLIKK við Háskólann í Reykjavík, sem leiðir þróun verkefnisins á Íslandi. Staðsetning starfsins er því innan Heilsubrúar með reglulegri viðveru í Háskólanum í Reykjavík.
Heilsubrú er miðlæg eining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem hefur það markmið að efla og samræma þverfaglega þjónustu innan heilsugæslunnar. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
- Veita gagnreynda meðferð í gegnum FLIKK.
- Þróun og endurmat á verklagi, fræðslu- og meðferðarefni FLIKK.
- Þátttaka í klínískum umbótum og innleiðingarvinnu stafrænnar meðferðar.
- Eftirfylgni og mat á árangri FLIKK í samvinnu við rannsóknarteymi Háskólans í Reykjavík.
- Taka þátt í að kenna, miðla og styðja starfsfólk í notkun nýrra meðferðarleiða með sérstakri áherslu á stafrænar lausnir.
- Útbúa fræðsluefni ,leiðbeiningar og þjálfun fyrir heilbrigðisstarfsfólk í notkun FLIKK
- Vera tengiliður í útbreiðslu FLIKK og annarra úrræða innan heilsugæslunnar.
- Þátttaka í framþróun FLIKK í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Bitjam og Háskólann í Oxford.
- Þátttaka í framþróun og innleiðingu annarra meðferðarúrræða innan Heilsubrúar með áherslu á stafrænar lausnir.
- Þverfaglegt samstarf við aðra fagaðila.
- Önnur verkefni sem upp gætu komið upp.
- Starfsleyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem sálfræðingur
- 5 ára starfsreynsla sem sálfræðingur
- Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum kostur
- Reynsla af handleiðslu kostur
- Þekking á gagnreyndum meðferðum
- Þekking og reynsla af HAM
- Reynsla af rannsóknarvinnu kostur
- Áhugi eða reynsla af stafrænum heilbrigðislausnum og þróunarvinnu
- Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
Íslenska
Enska
















