
Sérfræðingur á velferðarsviði fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra
Suðurnesjabær óskar eftir að ráða starfsmann í teymi á velferðarsviði sveitarfélagsins, Miðjuna. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Miðjan sinnir stuðningsþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra. Þar er lögð áhersla á að þróa og bjóða þjónustu sem uppfyllir þarfir og væntingar þjónustunotenda með áherslu á heildstæða og samfellda þjónustu fyrir börn á aldrinum 0-18 ára.
Suðurnesjabær vinnur m.a. eftir lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og hefur undanfarin ár þróað verklag sem styður við snemmtækan stuðning í þjónustu við leik- og grunnskólabörn. Sveitarfélagið leggur áherslu á samstarf, teymisvinnu, góðan starfsanda og tækifæri fyrir starfsfólk til að efla sig í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Dagleg málavinnsla út frá lögum og þjónustu sveitarfélagsins
- Málsstjórn í stuðningsteymum vegna farsældar barna
- Vinna með fjölskyldum; viðtöl, og stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þróun og skipulagning á fjölbreyttum úrræðum og námskeiðum
- Foreldrafræðslu, uppeldisráðgjöf og skilnaðarráðgjöf
- Ráðgjöf, þjálfun og handleiðsla við starfsfólks sem sinnir einstaklingsstuðningi
- Sinnir úttektum og leyfisveitingum í samráði við Gæða- og eftirlitsstofnun
- Markvisst samstarf og teymisvinna við stofnanir út frá farsældarlögum
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- BA/BS sem nýtist í starfi, s.s. nám í þroskaþjálfun, félagsráðgjöf eða sálfræði
- Viðbótarmenntun er kostur
- Þekking og reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Þekking og reynsla af viðtalstækni er æskileg
- Þekking og vinnsla með greiningartæki er kostur
- Þekking á PMTO foreldrafærni er kostur
- Áhugi á að vinna að velferð fólks
- Jákvætt viðmót og góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Góð almenn tungumála og tölvukunnátta
- Hæfni til að tjá sig á pólsku er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og góðir skipulagshæfileikar
Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Starfsferilskrá fylgir umsókn ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu.
Nánari upplýsingar veita Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs [email protected] og Sigríður Rósa Laufeyjardóttir [email protected]
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Suðurnesjabær er næstfjölmennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum með tæplega 4.400 íbúa. Mikil uppbygging og gróska er í sveitarfélaginu, m.a. með uppbyggingu nýrra hverfa og byggingu nýs leikskóla. Í Suðurnesjabæ eru tveir grunnskólar, tvær íþróttamiðstöðvar og sundlaugar, bóka- og byggðasafn og Þekkingarsetur. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag sem býður uppá nálægð við náttúruna og einstaka strandlengju sem umvefur sveitarfélagið.
Íslenska
Enska










