
Háskólinn í Reykjavík
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi.
Stefna Háskólans í Reykjavík er að vera öflugur kennslu- og rannsóknaháskóli með áherslu á tækni og samfélag.
Kjarnastarfsemi Háskólans í Reykjavík er kennsla og rannsóknir í sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag, þar sem áhersla er lögð á þverfagleika, alþjóðleg viðmið, nýsköpun og faglega þjónustu. Starfsemin mótast af persónulegum tengslum og virðingu fyrir samfélagi og umhverfi.

Verkefnastjóri á sviði mannauðsmála
Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf verkefnastjóra á sviði mannauðsmála með áherslu á þjónustu og móttöku við erlent starfsfólk og jafnréttismál. Starfið er bæði fjölbreytt og spennandi fyrir aðila sem er sífellt til í að þróast og takast á við nýjar áskoranir. Starfið er 100% og er hluti af mannauðsteymi HR.
Verkefni
- Umsýsla dvalar- og atvinnuleyfa við erlent starfsfólk
- Móttaka og þjónusta við erlent starfsfólk
- Sinna stöðu jafnréttisfulltrúa HR í jafnréttisnefnd,
- Fundaritari jafnréttisnefndar og tengiliður ásamt formanni nefndarinnar við aðila innan og utan HR
- Taka þátt í að framfylgja jafnréttisáætlun, skipulagningu á jafnréttisviðburðum og samstarfi um jafnréttismál
- Þátttaka í daglegum mannauðsmálum í nánu samstarfi við mannauðsteymið
- Þátttaka í þróun ferla og umbóta á sviði mannauðsmála
- Önnur tilfallandi verkefni á sviði mannauðsmála
Hæfni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, kostur ef á sviði mannauðsmála, lögfræði, sálfræði eða viðskiptagreina
- Reynsla af mannauðsmálum
- Áhugi á jafnréttismálum
- Reynsla af vinnu með dvalar- og atvinnuleyfi er kostur
- Þekking og hæfni við meðferð trúnaðarupplýsinga
- Jákvæðni, þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að geta unnið sjálfstætt sem og í teymi
- Frumkvæði, fagmennska og öguð vinnubrögð
- Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri ([email protected]). Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026.
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannauðsstjórnunMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðStarfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Verkefnastjóri kennslukerfa
Háskólinn í Reykjavík

Ert þú fjölhæf markaðsmanneskja?
Háskólinn í Reykjavík

Fagstjóri rafmagnssviðs
Háskólinn í Reykjavík

Háskólakennari eða lektor á vélasviði
Háskólinn í Reykjavík

Verkefnastjóri í Tæknifræðideild
Háskólinn í Reykjavík

Verkefnastjóri á Alþjóðasviði HR
Háskólinn í Reykjavík

Viltu hafa áhrif á framtíð kennslu í STEM-greinum?
Háskólinn í Reykjavík
Sambærileg störf (10)

Mannauðsstjóri
LSR

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Hvammi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sumarstörf á þróunar- og þjónustusviði
Vegagerðin

Hefur þú brennandi áhuga á velferðar- og heilbrigðismálum?
Tryggingastofnun

Mannauðssérfræðingur
Eimskip

Félagsráðgjafi á barna- og unglingageðdeild
Landspítali

Fagaðili á Fjölskyldusvið
Borgarbyggð

Meðferðaraðili - Geðheilsumiðstöð barna HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sumarstarfsfólk í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Ráðgjafi í réttindagæslu fyrir fatlað fólk
Mannréttindastofnun Íslands