LSR
LSR

Mannauðsstjóri

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) leitar að framsýnum og drífandi einstaklingi til að leiða uppbyggingu og þróun mannauðsmála hjá sjóðnum í nýju hlutverki mannauðsstjóra.

Mannauðsstjóri LSR mun leiða þróun og framkvæmd mannauðsmála þar sem áhersla er lögð á menningu, vellíðan, frammistöðu og markvissa þróun í síbreytilegu starfsumhverfi.

Leitað er að einstakling sem á auðvelt með að vinna náið með stjórnendum, byggja upp traust og hrinda umbótum í framkvæmd með skýrum markmiðum og mælikvörðum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Forysta og skipulag mannauðsmála.
  • Leiðandi í að efla jákvæða vinnustaðamenningu, samskipti og vellíðan starfsfólks.
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk.
  • Árangursmælingar og yfirumsjón með greiningum og eftirfylgni á lykiltölum mannauðsmála.
  • Ábyrgð á vinnustaðagreiningum og eftirfylgni í samvinnu við stjórnendur.
  • Ráðningar, móttaka nýliða og starfsþróun.
  • Mótun og eftirfylgni með fræðslustefnu og skipulagningu námskeiða.
  • Umsjón með fræðslukerfi og gerð fræðsluefnis.
  • Umsjón og framkvæmd jafnlaunakerfis.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf, meistaragráða sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af mannauðsstjórnun og djúp þekking á mannauðsmálum.
  • Reynsla af stjórnun verkefna á sviði vinnustaðamenningar, uppbyggingar liðsheildar, starfsþróunar og fræðslumálum.
  • Skilningur og þekking á rekstri.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar.
  • Leiðtogahæfni, samningatækni, jákvæðni og hæfni til ákvarðanatöku.
  • Frumkvæði, metnaður og drifkraftur til að hrinda verkefnum í framkvæmd.
  • Sjálfstæði í starfi, öguð vinnubrögð og gott auga fyrir tækifærum til úrbóta.
  • Reynsla í að greina gögn og miðla upplýsingum.
  • Þekking og reynsla á sviði jafnlaunamála, kjaramála og vinnuréttar er kostur
  • Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund við allar aðstæður.
  • Gott vald á íslensku og ensku og færni til tjáningar í ræðu og riti.

Hjá LSR njótum við þess að starfa í jákvæðu umhverfi með metnað og bjartsýni að leiðarljósi. Hjá sjóðnum starfa 67 manns sem búa að mikilli reynslu og þekkingu. Við vitum að það krefst ábyrgðar og framsýni að ávaxta eignir sjóðfélaga með traustum og sjálfbærum hætti til næstu áratuga. LSR starfar í samræmi við vottað jafnlaunakerfi og jafnréttisáætlun sjóðsins.

Umsóknarfrestur er til og með 2. mars næstkomandi.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarlegt kynningarbréf og starfsferilsskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]).

Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Engjateigur 11, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar