
Ráðgjafi í réttindagæslu fyrir fatlað fólk
Mannréttindastofnun Íslands leitar að einstaklingi til að starfa við réttindagæslu fatlaðs fólks. Starfið felur í sér bein og fagleg samskipti við einstaklinga, þar á meðal símtöl, vettvangsheimsóknir, leiðbeiningar og eftirfylgni í málum sem varða réttindi einstaklinga. Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem hefur faglega þekkingu og skilning á aðstæðum fatlaðs fólks og býr yfir hæfni til að eiga samskipti við fólk sem notar óhefðbundnar tjáskiptaleiðir eða þarfnast stuðnings til að koma vilja sínum á framfæri.
Í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Parísarviðmið um sjálfstæðar mannréttindastofnanir leggur Mannréttindastofnun Íslands áherslu á fjölbreytni í starfsliði sínu og hvetur fatlað fólk sérstaklega til að sækja um.
Hlutverk réttindagæslumanns fatlaðs fólks er að fylgjast með mannréttindum fatlaðs fólks og veita því viðeigandi stuðning við réttindagæslu, í samræmi við lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Verkefni felast m.a. í að:
- Veita fötluðu fólki leiðbeiningar og stuðning til að standa vörð um réttindi sín og sjálfsákvörðunarrétt
- Eiga í beinum samskiptum við einstaklinga, þar á meðal með óhefðbundnum tjáskiptaleiðum
- Heimsækja vettvang, hitta einstaklinga í þeirra umhverfi og byggja upp traust og tengsl
- Koma sjónarmiðum og réttindum fatlaðs fólks á framfæri gagnvart þjónustuaðilum og stofnunum og eftir atvikum fylgja málum eftir
- Veita upplýsingar um réttindi fatlaðs fólks samkvæmt íslenskum lögum og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
- Starfa í teymi réttindagæslumanna innan Mannréttindastofnunar Íslands
- Starfsréttindi frá landlækni á sviði félagsráðgjafar, sálfræði, þroskaþjálfunar eða annað sambærilegt nám
- Þekking á réttindum fatlaðs fólks og viðeigandi löggjöf ásamt þjónustu- og stuðningsúrræðum
- Reynsla af samskiptum við fatlað fólk
- Færni í notkun óhefðbundinna tjáskiptaleiða og stuðningi við fólk með fjölbreyttar stuðningsþarfi kostur
- Hæfni til að hlusta, skilja aðstæður einstaklinga og miðla upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt
- Mjög góð samskiptahæfni
- Jákvætt viðmót, þjónustulund og hugarfar grósku
- Skipulagshæfni, greiningarfærni og frumkvæði
- Reynsla af teymisvinnu kostur
- Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
- Hreint sakavottorð
Enska
Íslenska










