Eimskip
Eimskip
Eimskip

Mannauðssérfræðingur

Langar þig að starfa í alþjóðlegu umhverfi þar sem mannauðsmál snúast um fólk, traust og raunveruleg áhrif?

Eimskip leitar að reynslumiklum og öflugum mannauðssérfræðingi sem hefur brennandi áhuga á góðri þjónustu, faglegum vinnubrögðum og öflugu samstarfi.

Starfið er hluti af Mannauðs- og samskiptasviði Eimskips, sem starfar þvert á samstæðuna og sinnir mannauðs-, fræðslu-, launa-, samskipta- og markaðsmálum í kraftmiklu og fjölbreyttu starfsumhverfi þar sem gildin liðsheild, framsækni, áreiðanleiki og virðing eru leiðarljós í daglegu starfi.

Hvað munt þú gera í starfinu?

  • Sinna daglegum mannauðsmálum í nánu samstarfi við mannauðsteymið
  • Veita ráðgjöf og stuðning til stjórnenda og starfsfólks
  • Stýra ráðningum – frá auglýsingu til ráðningar
  • Vera í virkum samskiptum við starfsfólk varðandi réttindi, ferla og stoðþjónustu
  • Taka þátt í innleiðingu og þróun mannauðsferla og kerfa
  • Koma að fræðsluverkefnum og þróun menningar, samskipta og innra samstarfs
  • Vinna að skýrslugerð, greiningum og stefnumótun mannauðsmála
  • Taka þátt í öðrum fjölbreyttum verkefnum eftir þörfum

Hverju leitum við að?

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur menntun á sviði mannauðsstjórnunar eða í tengdum greinum
  • Hefur yfirgripsmikla reynslu af mannauðsmálum og góða þekkingu á helstu ferlum
  • Er skipulagður, sjálfstæður og sýnir frumkvæði
  • Á auðvelt með samskipti, hefur ríka þjónustulund og vinnur vel með ólíkum hópum
  • Býr yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti
  • Er tölvulæs og fljótur að tileinka sér ný kerfi

Hvað færðu í staðinn?

  • Öflugt starfsmannafélag og aðgang að orlofshúsum víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakka sem m.a. inniheldur samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun
  • Aðgang að góðu mötuneyti með niðurgreiddum mat
  • Farsímaáskrift og nettengingu heima
  • Nútímalega vinnuaðstöðu og sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar