Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Þjónustufulltrúi á skrifstofu félagslegs húsnæðis

Velferðarsvið Kópavogsbæjar leitar að öflugum liðsauka í starf þjónustufulltrúa á skrifstofu félagslegs húsnæðis.

Þjónustufulltrúi annast móttöku og umsýslu umsókna og útleigu almennra félagslegra leiguíbúða og íbúða fyrir 60 ára og eldri. Þjónustufulltrúi viðheldur skráningum í leigukerfi félagslegs húsnæðis, annast um leigulista og samþykkir reikninga vegna húsgjalda. Í starfinu felst einnig ráðgjöf og upplýsingagjöf vegna félagslegra leiguíbúða til íbúa, þjónustuþega og starfsfólks Kópavogsbæjar.

Starfsfólk velferðarsviðs leitast við að skapa trausta ímynd og sýna hlutlægni, umhyggju og virðingu í verki gagnvart íbúum Kópavogsbæjar og öðru starfsfólki. Áhersla er lögð á árangursríka, skilvirka og hagkvæma þjónustu og gott samstarf við önnur svið bæjarins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka umsókna um félagslegar leiguíbúðir og gagnaöflun.
  • Afgreiðsla umsókna um félagslegar leiguíbúðir og umsjón með skráningum í leigukerfi.
  • Innri og ytri samskipti, m.a. við umsækjendur, leigutaka, ráðgjafa á velferðarsviði, bókhald og innheimtudeild bæjarins.
  • Uppáskrift reikninga vegna húsgjalda og yfirferð tekju- og eignaupplýsinga frá skattayfirvöldum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun er skilyrði, frekari menntun er kostur.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg og reynsla af notkun M365.
  • Góð enskukunnátta er áskilin, þekking á fleiri tungumálum getur verið kostur.
  • Reynsla og þekking af velferðarþjónustu og stjórnsýslu sveitarfélaga er æskileg.
  • Jákvæðni, áreiðanleiki og traust vinnubrögð.
  • Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuvika.
  • Heilsuræktarstyrkur.
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sundlaugar bæjarins.
Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur29. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar