Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Þjónustuver - þjónustufulltrúi - sumarstarf

Þjónustuver - þjónustufulltrúi - sumarstarf

Öryggismiðstöðin auglýsir eftir metnaðarfullum þjónustufulltrúa í Þjónustuver til að leysa fjölbreytt verkefni í skemmtilegu teymi.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og um er að ræða sumarstarf með möguleika á fastráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Símsvörun og afgreiðsla erinda
  • Úrvinnsla fyrirspurna af vef
  • Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum þjónustuvers
  • Móttaka og þjónusta við viðskiptavini
  • Ýmis önnur verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Frábærir hæfileikar til að vinna í hóp
  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Sjálfstæð, öguð og nákvæm vinnubrögð
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta (Microsoft office 365)
  • Reynsla og þekking á NavisionNavision / Business central kostur
  • Reynsla/þekking á CRM kerfi sé kostur
  • Reynsla úr þjónustu- eða símaveri kostur

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni eru afgreiðsla erinda, móttaka viðskiptavina, símsvörun.

Um er að ræða sumarstarf á samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað. Möguleiki er á framlengingu í starfi eftir að sumri lýkur.

Vinnutími er frá kl. 08-16 virka daga.

Umsóknarfrestur er til og með 31.3.2026

Umsókn skal senda inn í gegnum Alfreð. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Jóhannsson verkefnastjóri í gegnum netfangið [email protected]

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að allir starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði.

Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu í öryggis-og velferðartækni, fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.

Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Askalind 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar