

Öryggisverðir - Vaktferðir og útkallsþjónusta - Sumarstarf
Öryggisverðir - Vaktferðir og útkallsþjónusta - Sumarstarf með möguleika á áframhaldandi ráðningu
Öryggismiðstöðin auglýsir eftir umsækjendum í störf öryggisvarða.
Starfið er á sviði Fjármála og reksturs sem veitir fjölbreytta þjónustu öryggisvarða, meðal annars útkallsþjónustu, vaktferðir, verðmætaflutninga og almenna öryggisgæslu fyrir viðskiptavini Öryggismiðstöðvarinnar.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega og sé tilbúin/n í fullt starf.
Athugið að um vaktavinnu er að ræða.
Við leitum að einstaklingum til starfa sem hafa ástríðu fyrir öryggi og velferð annarra, eru jákvæðir og geta tekið ákvarðanir skjótt og vel.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útkallsþjónusta vegna viðvörunarboða frá öryggiskerfum
- Vakt- og eftirlitsferðir í fyrirtæki og stofnanir
- Aðstoða viðskiptavini við úrlausn öryggistengdra verkefna
- Samskipti við starfsmenn á stjórnstöð og fleira
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og jákvæðni
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Gott vald á íslensku og ensku
- Almenn tölvukunnátta er kostur
- Þekking á almennri skyndihjálp er kostur
- Bílpróf er nauðsynlegt
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði og lágmarksaldur er 20 ára. Starfið hentar öllum kynjum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gylfi Björgvin verkefnastjóri í gegnum netfangið [email protected]
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu í öryggis-og velferðartækni, fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.
Íslenska






