Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Starfsmaður á stjórnstöð - Sumarstarf

Starfsmaður á stjórnstöð - Sumarstarf

Öryggismiðstöðin auglýsir eftir starfsmanni á stjórnstöð í fullt starf og hlutastarf.

Unnið er í vaktavinnu, bæði nætur og dagvaktir

Leitað er af jákvæðum aðila sem getur tekið ákvarðanir skjótt og vel.

Vðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og um er að ræða sumarstarf með möguleika á fastráðningu

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samskipti við viðskiptavini og afgreiðsla viðvörunarboða
  • Samskipti við öryggisverði á útkallsbifreiðum og stýringu þeirra
  • Símsvörun fjölbreyttra verkefna og úrvinnsla erinda
  • Gerð pantana á þjónustu fyrir viðskiptavini og fleira

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Geta afgreitt mál hratt og örugglega
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Almenn tölvukunnátta, Word, Excel, Outlook og Navision er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku (tala og rita)
  • Reynsla af öryggis- og löggæslumálum er kostur
  • Þekking á almennri skyndihjálp er kostur
  • Þekking á öryggiskerfum, brunaviðvörunarkerfum og slökkvibúnaði er kostur

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði og lágmarksaldur er 20 ára. Starfið hentar öllum kynjum.

Umsóknarfrestur er til og með 31.mars 2026

Nánari upplýsingar veitir Arnar Magnús verkefnastjóri í gegnum netfangið [email protected]

Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu í öryggis-og velferðartækni, fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.

Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Askalind 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar