
Bera hf.
Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Félagið er skráð í kauphöll og fer með eignarhald á leiðandi rekstrarfélögum sem gegna mikilvægu hlutverki á íslenskum markaði.
Nafnið Bera hefur sterka sögulega tengingu við uppruna Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og endurspeglar rætur, styrk og metnað samstæðunnar til framtíðar.
Dótturfélög Beru starfa sjálfstæð og sérhæfð rekstrarfélög sem hvert um sig byggir á traustum grunni þekkingar og reynslu:
• Ölgerðin er leiðandi fyrirtæki á drykkjarvörumarkaði á Íslandi.
• Danól – sérhæfir sig í innflutningi og markaðssetningu vörumerkja.
• Gæðabakstur – framleiðir og dreifir ferskum og gæðamiðuðum bakarísvörum.
• Kjarnavörur – framleiðir og dreifir fjölbreyttum mat- og neysluvörum.
Hlutverk Beru er að styðja við verðmætasköpun og sjálfbæran vöxt innan samstæðunnar. Félagið mótar heildarstefnu, tryggir skilvirka stoðþjónustu og skapar tækifæri til frekari þróunar og nýsköpunar.
Undir móðurfélaginu er meðal annars sameinuð þjónusta á sviði mannauðsmála, fjármála, stafrænnar þróunar, upplýsingatækni, gæðamála, sjálfbærni, innkaupa og vöruhúsareksturs. Með því nýtist stærðarhagkvæmni betur og rekstrarfélögin geta einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi og þjónustu við viðskiptavini.
Bera leggur áherslu á ábyrga stjórnarhætti, sjálfbærni og langtímahugsun í öllum sínum verkefnum. Markmið félagsins er að byggja upp öfluga og samkeppnishæfa samstæðu sem skapar verðmæti fyrir viðskiptavini, starfsfólk, hluthafa og samfélagið í heild.
Sumarstarf í fjármáladeild
Við leitum að öflugri og jákvæðri manneskju til að starfa hjá okkur í sumar í fjármáladeild Beru.
Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Dótturfélög Beru eru m.a. Ölgerðin og Danól.
Fjölbreytt verkefni í boði til að öðlast reynslu á fjármálasviði hjá umsvifamiklu fyrirtæki, m.a. gjaldkerastörf og afleysing í innheimtu og bókhaldi. Tilvalið fyrir nema í viðskiptafræði eða skyldum greinum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innheimta og samskipti við viðskiptavini
- Samskipti við innri viðskiptavini
- Greiðsla til innlendra og erlendra lánardrottna
- Afleysing annarra starfa í bókhaldi og innheimtu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Samskipta- og samstarfshæfni og rík þjónustulund
- Áhugi og metnaður í starfi
- Nákvæmni, áreiðanleiki og framsýni
Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Grjótháls 7-11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi á skrifstofu félagslegs húsnæðis
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Ert þú Excel týpa?
Beautybox

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Sérfræðingur í fjár- og áhættustýringu
Icelandair

Almenn umsókn hjá Fagkaupum
Fagkaup ehf

Fulltrúi í bókhald - Sumarstarf
Íslandshótel

KPMG leitar að nýliðum á endurskoðunarsviði
KPMG á Íslandi

Skrifstofustjóri - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Sumarstörf hjá BL
BL ehf.

Bókhald
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Hefur þú reynslu af endurskoðun?
KPMG á Íslandi

Bókhald
Hagvangur