Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Skrifstofa Alþingis leitar að sérfræðingum til starfa á þingfunda- og útgáfusviði

Við leitum að þremur öflugum íslenskufræðingum með góða tæknikunnáttu og áhuga á að starfa með okkur á skrifstofu Alþingis. Meginverkefnin eru yfirlestur og útgáfa á þingskjölum og ræðum ásamt aðstoð við þingfundi. Unnið er þvert á deildir innan sviðsins. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi störf í lifandi starfsumhverfi.

Þingfunda- og útgáfusvið annast undirbúning þingfunda og veitir forseta, varaforsetum og þingmönnum faglega ráðgjöf og aðstoð við framkvæmd þeirra. Þá ber sviðið ábyrgð á útgáfu á þingskjölum og umræðum í þingsal, Alþingistíðindum og lagasafni. Nánari upplýsingar um hlutverk sviðsins má finna á vef þingsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gátun og frágangur texta í þingskjölum og ræðum
  • Yfirlestur og lagfæringar á lagatæknilegum atriðum
  • Vinnsla og útgáfa þingskjala
  • Aðstoð við undirbúning og framkvæmd þingfunda
  • Þátttaka í þróun verkefna og verklags
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í íslensku, málvísindum eða sambærilegum greinum
  • Marktæk reynsla af vinnu við yfirlestur og frágang texta
  • Góð tæknikunnátta og hugarfar grósku 
  • Farsæl reynsla af teymisvinnu
  • Frumkvæði og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð, nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni og jákvæðni 
Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kirkjustræti 10, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar