
Mannauðsstjóri
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum mannauðsstjóra sem vill hafa raunveruleg áhrif á daglegan rekstur og árangur VHE. Um er að ræða lykilhlutverk innan fyrirtækisins þar sem þú leiðir mannauðsmál, styður stjórnendur og tryggir fagleg og skilvirk vinnubrögð í öllum þáttum mannauðsmála.
Sem mannauðsstjóri hjá VHE berð þú ábyrgð á að mannauðsmál styðji við rekstur fyrirtækisins, efli samstarf og tryggi gott starfsumhverfi. Þú vinnur náið með stjórnendum og starfsfólki að því að leysa fjölbreytt verkefni, bæta ferla og styrkja menningu sem stuðlar að árangri.
Við leitum að einstaklingi sem hefur sterka leiðtogahæfni, er lausnamiðaður og nýtur þess að vinna í kraftmiklu rekstrarumhverfi þar sem fagmennska, samvinna og árangur eru í forgrunni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Forysta og stefnumótun mannauðsmála í takt við markmið fyrirtækisins.
- Ábyrgð á framþróun, innleiðingu og nýsköpun á sviði mannauðsmála.
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í mannauðsmálum.
- Umsjón með starfsþróunar-, fræðslu- og vinnuverndarmálum.
- Ráðningar og móttaka nýliða.
- Mótun ferla og innleiðing umbótaverkefna.
- Gagnadrifnar árangursmælingar og greining mannauðsgagna..
- Uppbygging og viðhald heilbrigðrar og öflugrar vinnustaðamenningar.
- Ábyrgð á launastefnu, launagreiningum og jafnlaunakerfi.
- Eftirfylgni með jafnréttismálum og jafnlaunastefnu.
- Túlkun kjarasamninga og samskipti við stéttarfélög.
- Tryggja samræmi við lög og reglur (vinnuréttur, persónuvernd o.fl.).
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. í mannauðsstjórnun, viðskiptafræði eða tengdum greinum.
- Reynsla af mannauðsstjórnun og djúp þekking á mannauðsmálum.
- Skilningur og þekking á rekstri.
- Reynsla af stefnumótun, áætlunargerð og innleiðingu mannauðsverkefna.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sterk þjónustulund.
- Leiðtogahæfni og geta til að hafa jákvæð áhrif á menningu og starfsanda.
- Frumkvæði, sjálfstæði og sterk skipulagshæfni.
- Lausnamiðuð hugsun, greiningarhæfni og hæfni til að vinna með gögn.
- Þekking og reynsla á sviði jafnlaunamála, kjaramála og vinnuréttar
- Nákvæmni og fagleg vinnubrögð.
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
VHE er öflugt og rótgróið fjölskyldufyrirtæki með áratuga reynslu í að þróa og veita lausnir fyrir íslenskt atvinnulíf. Fyrirtækið var stofnað árið 1971 og hefur vaxið í að vera leiðandi þjónustuaðili á sviði véltækni, verkfræði og iðnaðarlausna.
Hjá VHE starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem vinna saman að hönnun, framleiðslu og uppsetningu búnaðar ásamt viðhalds- og rekstrarþjónustu fyrir stóriðju, orkufyrirtæki og annan iðnað. Fyrirtækið leggur áherslu á að þróa hagkvæmar og vandaðar lausnir sem bæta rekstur og stuðla að aukinni sjálfvirkni og skilvirkni hjá viðskiptavinum.
VHE er með starfsstöðvar víðs vegar um landið og hjá fyrirtækinu starfar stór og öflugur hópur starfsfólks með víðtæka þekkingu og reynslu. Menning fyrirtækisins byggir á fagmennsku, samvinnu og sterkri lausnamiðaðri hugsun þar sem markmiðið er að skila raunverulegum árangri í rekstri viðskiptavina.
Hjá VHE færð þú tækifæri til að starfa í kraftmiklu og tæknilega spennandi umhverfi þar sem verkefnin eru fjölbreytt, áhrifin sýnileg og þekking starfsfólks er lykilforsenda árangurs.
www.vhe.is
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl nk.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Garðar Óli Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska
Enska