
Mannauðsstjóri - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum er laus til umsóknar staða mannauðsstjóra. Við leitum að drífandi og framsýnum einstaklingi í spennandi og krefjandi starfsumhverfi. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á og leiðir framkvæmd mannauðsmála innan embættisins í umboði lögreglustjóra og situr í yfirstjórn embættisins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Við ráðningar hjá LSS er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.
-
Fagleg forysta í mannauðsmálum embættisins
-
Þróun mannauðsstefnu og eftirfylgni hennar
-
Þróun starfsumhverfis í anda stefnu embættisins
-
Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk
-
Umsjón, undirbúningur og eftirfylgni starfsmannasamtala
-
Ábyrgð á helstu mannauðsferlum, gerð starfagreininga og starfslýsinga
-
Yfirumsjón með ráðningum, móttaka nýs starfsfólks, þjálfun, starfsþróun og starfslokum
-
Túlkun kjara- og stofnanasamninga, launasetning og yfirumsjón launavinnslu
-
Samskipti við stéttarfélög, framkvæmd kjarasamninga, réttindamál og aðbúnaður
-
Jafnlaunavottun og gæðamál á sviði mannauðsmála
-
Seta í yfirstjórn embættisins og þátttaka í stefnumótun
-
Háskólagráða sem nýtist í starfi auk framhaldsmenntunar á sviði mannauðsstjórnunar eða sambærilegrar menntunar
-
Yfirgripsmikil þekking og reynsla af mannauðsmálum
-
Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu og vinnurétti
-
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
-
Mjög góð þjónustulund, jákvætt viðhorf og sveigjanleiki
-
Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Árangurs- og lausnamiðuð hugsun
-
Þekking og reynsla af að leiða breytingar
-
Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð
-
Gott vald á íslensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli
-
Mjög góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg, þekking á Orra, MTP og/eða H3 er kostur
Íslenska