

Fagstjóri lækninga - Heilsugæslan Garðabæ
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) auglýsir laust til umsóknar starf fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Garðabæ. Fagstjóri lækninga ber ábyrgð á skipulagningu læknisþjónustu. Mikil áhersla er lögð á samvinnu milli fagstétta innan starfsstöðva HH og að þjónustuþarfir skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni. Starfshlutfall er 100% og ráðið verður ótímabundið í starfið til frá og með 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á starfsstöðvum HH starfa fagstjóri hjúkrunar og fagstjóri lækninga. Hlutverk fagstjóra er að annast skipulag, verkstjórn og samhæfingu innan fagsviðs í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á ráðningartíma mun forstjóri fela öðrum hvorum fagstjóranna að sinna verkefnum forstöðumanns samkvæmt gildandi fyrirkomulagi.
- Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan fagsviðs með forstöðumanni, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
- Er forstöðumanni innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hann
- Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
- Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga
- Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
- Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
- Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar, veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðvar
- Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða
- Sérfræðingur í heimilislækningum
- Reynsla af starfi í heilsugæslu skilyrði
- Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
- Nám í stjórnun er æskilegt
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
- Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
- Reynsla af rekstri innan heilbrigðisþjónustu æskileg
- Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Íslenska



















