
Framkvæmdastjóri
Stjórn Stefnu ehf. óskar eftir að ráða framsýnan leiðtoga til að leiða umbreytingaferli félagsins sem felur m.a. í sér innleiðingu og þróun AI lausna, áframhaldandi þróun ráðgjafasviðs og hugbúnaðarlausnir. Leitað er að reynslumiklum stjórnanda með þekkingu á hugbúnaðargerð og sýn á það hvernig sá geiri muni þróast á komandi misserum og frumkvæði og metnað til að leiða félagið í gegnum þær breytingar sem sú þróun kallar á. Framkvæmdastjóri þarf að búa yfir framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og hafa metnað til að ná árangri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með daglegum rekstri og stjórnun félagsins.
- Ábyrgð á áætlanagerð og rekstraruppgjörum.
- Yfirumsjón með innleiðingu nýrra lausna og þróun á vöruframboði.
- Yfirumsjón með mannauðsmálum félagsins.
- Stefnumótun og eftirfylgni hennar í samstarfi við stjórn félagsins.
- Yfirumsjón með gæða- og öryggiskerfum félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun, t.d. á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða tengdra greina. Framhaldsmenntun á sviði viðskipta eða stjórnunar er kostur.
- Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni.
- Víðtæk reynsla af stjórnun, rekstri, fjármálum, stefnumótun og áætlanagerð.
- Reynsla af því að leiða þróunarverkefni og samninga.
- Framsýni og þekking á stafrænum lausnum.
- Reynsla af breytingastjórnun og stjórnun í kviku umhverfi.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Góð færni í tjáningu í ræðu og riti.
Um vinnustaðinn
Stefna sérhæfir sig í stafrænum lausnum fyrir fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök. Hjá Stefnu starfar teymi sérfræðinga í öllu því sem viðkemur hugbúnaðargerð; greiningu, hönnun, vefun, forritun, ráðgjöf og efnismálum. Við erum sveigjanleg og útsjónarsöm, setjum okkur vel inn í þarfir viðskiptavina, finnum lausn sem hentar hverju sinni og höfum það að markmiði að uppfylla þarfir þeirra sem gera kröfur.
Stefna er með skrifstofur bæði á Akureyri og í Reykjavík og þar vinnur samhentur hópur sérfræðinga sem hefur áhuga á öllu sem kemur að hugbúnaði. Við viljum að okkar fólki líði vel í vinnunni og því skiptir það okkur máli að skapa faglegt og traust starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2026 en unnið verður úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511-1225.
Íslenska
Enska










