

Rekstrarstjóri óskast – Arna ís og Kaffibar
Arna Ís og Kaffibar leitar að öflugum rekstrarstjóra með reynslu úr veitingageiranum til að stýra daglegum rekstri og tryggja framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýring og ábyrgð á daglegum rekstri
- Starfsmannastjórnun, ráðningar, þjálfun og vaktaskipulag
- Umsjón með innkaupum og samskipti við birgja
- Gæðaeftirlit og þjónusta við viðskiptavini
- Eftirlit með kostnaði og rekstrarárangri
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af störfum í veitingageiranum er skilyrði.
- Reynsla af rekstri eða stjórnun er mjög æskileg.
- Góð þekking á daglegum rekstri veitingastaða, s.s. birgðastýringu, kostnaðareftirliti og þjónustustjórnun.
- Færni í skipulagningu, vaktagerð og markmiðasetningu.
- Sjálfstæð vinnubrögð, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
- Framúrskarandi samskiptafærni og jákvætt viðmót.
- Hæfni til að vinna undir álagi og halda yfirsýn í hröðu umhverfi.
- Grunnþekking á tölvukerfum og kassakerfum er kostur.
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Eiðistorg 13, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaÁkveðniÁreiðanleikiDKFagmennskaFjárhagsáætlanagerðFljót/ur að læraHreint sakavottorðHugmyndaauðgiJákvæðniLaunavinnslaLeiðtogahæfniMicrosoft ExcelRáðningarSkipulagSölumennskaStarfsmannahaldVaktaskipulagVinna undir álagiViðskiptasamböndÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Fjármála- og rekstrarstjóri Alva Capital
Alva Capital ehf.

Stjórnandi búsetuþjónustu velferðarsviðs
Mosfellsbær

Rekstrarstjóri Berjaya Akureyri
Akureyri - Berjaya Iceland Hotels

Framkvæmdastjóri
Eignaumsjón

Sviðsstjóri flota og viðhalds
Steypustöðin

Deildarstjóri Fimleikadeildar Aftureldingar
Ungmennafélagið Afturelding

Rekstrarstjóri
Malbikstöðin

Rekstrarstjóri / Bókhald
Hringiðan Internetþjónusta

Rekstrarstjóri MAIKA'I KEF.
MAIKA'I