JBT Marel
JBT Marel
JBT Marel

Strategic Purchaser

JBT Marel leitar að drífandi og framsýnum Strategic Purchaser til að ganga til liðs við Innkaupateymið okkar í Garðabæ. Í þessu áhrifamikla starfi munt þú taka þátt í að móta vöruflokkastefnu, leiða innkaupaverkefni og tryggja að aðfangakeðjan sé tilbúin fyrir framtíðar nýsköpun og vöxt.

Þú munt vinna náið með þverfaglegum teymum og birgjum— og gegna lykilhlutverki í að koma nýrri tækni í framkvæmd á sama tíma og þú stýrir fjölbreyttu og mikilvægu birgjasafni yfir marga vöruflokka.

Þetta starf hentar einstaklingi sem er framsýnn, leiðandi og ábyrgðarfullur — einstaklingi sem nýtur þess að starfa í tæknilegu umhverfi, í samvinnu með fjölbreyttum teymum og notast við gagnadrifna ákvarðanatöku. Við leitum að stefnumiðuðum einstakling með góða samskiptahæfni og brennur fyrir umbótum. Þú nýtur þess að vinna með birgjum, tækniteymum og stjórnendum til að hafa áhrif á ákvarðanir og skila mælanlegum árangri.

Helstu verkefni

  • Móta og þróa vöruflokkastefnu yfir fjölbreytt svið innkaupa
  • Leiða stefnumótandi innkaupaverkefni
  • Undirbúa aðfangakeðju fyrir nýjar vörur í samstarfi við nýsköpunar- og verkfræðiteymi
  • Þróa kostnaðarlíkön, greina markaðsþróun og finna tækifæri til kostnaðar- og afkastaumbóta
  • Ráðleggja innri hagsmunaaðilum um innkaupastefnu, val á birgjum og tækifærum til hagkvæmni útfærslum
  • Vöruflokkastjórnun með áherslu á “New Development Supplier Lists” (NDSL) fyrir ný verkefni
  • Fylgjast með og bæta árangur birgja með tilliti til gæða, afhendinga, tækni, kostnaðar og sjálfbærni (QLTCS)
  • Styðja við þátttöku birgja á fyrstu stigum hönnunar og tryggja samræmi milli innkaupa og þróunaráfanga
  • Vinna náið með rekstrarinnkaupum, gæðateymi og rekstrareiningum til að tryggja samræmi í virðiskeðjunni
  • Taka þátt í uppbyggingu öflugrar og sveigjanlegrar aðfangakeðju

Þú býrð yfir

  • Sterkum leiðtogahæfileikum og getu til að hafa áhrif þvert á teymi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Eiginleikum til utanumhalds á hagaðilum
  • Heiðarleika, fagmennsku og samræmi við gildi JBT Marel
  • Sterkri greiningarhæfni og getu til að vinna úr flóknum gögnum
  • Skipulögðum og nákvæmum vinnubrögðum með áherslu á viðskiptavininn
  • Seiglu, aðlögunarhæfni og getu til að starfa í síbreytilegu umhverfi
  • Drifkrafti og ábyrgðarkennd til að ná bæði rekstrarlegum og stefnumótandi markmiðum

Menntun og reynsla

  • Háskólagráða (BS eða MS) á viðeigandi sviði (t.d. verkfræði, viðskiptafræði eða sambærilegt)
  • Reynsla af innkaupum er kostur
  • Reynsla úr þverfaglegum verkefnum, aðfangakeðju, verkfræði eða viðskiptahlutverkum er mikils metin
  • Reynsla af vöruflokkastjórnun er kostur, sérstaklega tengd tæknilegum íhlutum, samsetningum eða hráefnum
  • Sterkur tæknilegur skilningur og geta til að vinna með verkfræðiteymum
  • Reynslu af vinnu í fjölmenningarlegu og þverfaglegu umhverfi er kostur
  • Reynsla af ERP kerfum (SAP er kostur)
  • Góður skilningur á aðfangakeðju, skipulagi og birgjastjórnun
  • Góð enskukunnátta í ræðu og riti

Hvað við bjóðum

  • Stefnumótandi og áhrifamikið hlutverk í alþjóðlegu nýsköpunarfyrirtæki
  • Bein þátttaka í þróun nýrra vara og tækni á fyrstu stigum
  • Alþjóðlegt og samstarfsmiðað vinnuumhverfi með fjölbreyttum teymum
  • Tækifæri til faglegs þroska og leiðtogaþróunar
  • Fyrirtækjamenning sem leggur áherslu á nýsköpun, samvinnu og stöðugar umbætur
  • Tækifæri til að móta birgjastrategíu og hafa áhrif á langtímaárangur fyrirtækisins
  • Fjölskylduvænn vinnutími
  • Frábært mötuneyti með morgunmat og heitum mat í hádeginu
  • Íþróttaaðstaða, íþróttastyrkur og hjólageymsla
  • Samgöngustyrkur
  • Sálfræðistyrkur
  • Fæðingarorlofsstyrkur
  • Árlegt heilsufarsmat
  • Virkt starfsmannafélag

Hefur þú áhuga?

Ef þig langar að taka að þér stefnumótandi hlutverk og stuðla að framúrskarandi árangri í aðfangakeðju hjá alþjóðlegu tæknifyrirtæki, þá viljum við gjarnan heyra frá þér.

🌐 Nánar um okkur: JBT Marel
🔗 Fylgstu með okkur á LinkedIn: JBT Marel

Auglýsing birt27. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar