

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Hefur þú áhuga á verklegum framkvæmdum og að sjá verk verða að veruleika? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.
COWI á Íslandi leitar að sérfræðingi í framkvæmdareftirliti með jarðvegs, gatna- og lagna framkvæmdum til að bætast við deild samganga og veitna. Á deildinni starfa um 20 einstaklingar sem fást við fjölbreytt verkefni sem snúa að hönnun samgöngumannvirkja og veitulagna, framkvæmdareftirliti, mælingar, gerð kostnaðaráætlana og útboðsgagna.
Lykilþættir starfsins eru:
- Daglegt eftirlit með framkvæmdum í samræmi við áætlanir, kröfur, staðla, lög og reglugerðir.
- Samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila
- Úttektir og skýrslugerðir vegna eftirlits
- Skjalaskráning og vistun gagna
- Þátttaka á verkfundum og ritun fundargerða
Til að ná árangri í þessari stöðu teljum við að þú ættir að vera þjónustusinnaður, sveigjanlegur einstaklingur sem er frábær í að byggja upp sambönd, gefa gaum að smáatriðum og alltaf opinn fyrir nýjum áskorunum.
Að auki erum við að leitast eftir:
- Menntun sem nýtist í starfi s.s. verk-, tækni- eða iðnfræði, iðnmenntun eða önnur sambærileg menntun.
- Reynsla af verklegum framkvæmdum og eftirlitsstörfum.
- Þekking á íslenskum byggingarreglugerðum og stöðlum er kostur.
- Almenn tölvuþekking.
- Jákvætt viðhorf og frumkvæði í starfi.
- Góðir samskiptahæfileikar.
- Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
- Íslenskukunnátta í tali og rituðu máli.
- Bílpróf.
Við bjóðum líka uppá
- Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika samhliða vinnu á starfsstöð.
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrki.
- Starfsmannafélag með fjölbreyttum viðburðum yfir árið.
- Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi.
- Starfsþróunarmöguleika innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræna þjálfun hjá COWI Academy.
- Árlegt heilsufarsmat.
Íslenska
Enska










