Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Sérfræðingur í launamálum

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi til liðs við mannauðsteymi Íslandsbanka. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi þar sem nákvæmni, þjónustulund og fagmennska skipta miklu máli.

Launavinnsla gegnir lykilhlutverki í rekstri bankans og ber ábyrgð á nákvæmum og áreiðanlegum launaútreikningi fyrir starfsfólk. Launavinnsla er hluti af mannauðssviði og starfar náið með fjármálasviði og stjórnendum bankans að tryggja skilvirka, gagnsæja og faglega meðferð launatengdra mála.

Í starfinu gefst tækifæri til að taka þátt í þróun og umbótum á launaferlum, styðja við stjórnendur og starfsfólk með ráðgjöf í launatengdum málum og vinna með fjölbreytt gögn og kerfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með launavinnslu og launaútreikningum
  • Skráning og eftirfylgni með launatengdum gögnum í launakerfum
  • Afstemming launa, bókhaldsgagna og bankareikninga
  • Úrvinnsla og uppgjör launatengdra gjalda til opinberra aðila
  • Samstarf við stjórnendur og starfsfólk vegna launa- og kjaramála
  • Þátttaka í þróun og umbótum á launaferlum og verkferlum
  • Önnur verkefni samkvæmt nánara samkomulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af launavinnslu skilyrði
  • Þekking á launakerfum skilyrði. Bankinn notar H3 launakerfi
  • Góð bókhaldsþekking og skilningur á fjárhagslegum gögnum
  • Góð þekking á Excel og hæfni til að vinna með gögn og greiningar
  • Framúrskarandi skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
Við bjóðum
  • Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í öflugu teymi
  • Tækifæri til að taka þátt í þróun og umbótum á ferlum
  • Framsýnt og metnaðarfullt starfsumhverfi
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og góðan starfsanda
  • Tækifæri til starfsþróunar og símenntunar
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar