Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins
Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins

Sviðsstjóri almennrar þjónustu

Viltu leiða þjónustu sem skiptir máli fyrir alla stjórnsýsluna?

Sviðsstjóri almennrar þjónustu

Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða öflugan og framsýnan leiðtoga til að stýra þjónustusviði stofnunarinnar. Um er að ræða lykilstöðu þar sem viðkomandi leiðir þjónustu sem styður daglega starfsemi ráðuneyta og annarra ríkisaðila.

Um starfið

Sviðsstjóri almennrar þjónustu ber ábyrgð á rekstri og þróun fjölbreyttrar þjónustu, þar á meðal:

  • Þjónustuveri fyrir notendur Ísland.is og símsvörun fyrir ráðuneyti
  • Öryggisakstri ráðherra
  • Fræðsluþjónustu fyrir ráðuneyti (Stjórnarráðsskólinn)

Sviðsstjóri ber ábyrgð á að þjónustan sé skilvirk, áreiðanleg og í takt við þarfir notenda og leiðir þróun og umbætur á þjónustu.

Starfið felur í sér náið samstarf við önnur svið innan Umbru og virka þátttöku í stefnumótun.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Leiða og þróa starfsemi sviðsins og stjórnun þess
  • Tryggja gæði, samræmi og framúrskarandi þjónustu
  • Greina tækifæri til umbóta og aukins samrekstrar þvert á ráðuneyti
  • Fylgja eftir árangri lykilmælikvarða og þjónustugæðum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af rekstri þjónustu og stjórnun
  • Sterk leiðtogahæfni og þjónustumiðuð hugsun
  • Góð greiningar- og skipulagshæfni
  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
  • Þekking á opinberu umhverfi er kostur
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.  Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skuggasund 1 , 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Viðskiptafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar