
Arctic Fish
Arctic Fish framleiðir hágæða lax í seiðaeldisstöð í Tálknafirði, sjókvíum á Vestfjörðum sem pakkað er í hátækni laxavinnslu félagsins í Bolungarvík. Markmiðið er að halda áfram að vaxa og byggja upp sjálfbæran og arðbæran rekstur þar sem eldið er í sátt við samfélag og umhverfi. Arctic Fish telur að lykillinn að velgengni fyrirtækisins muni byggja á metnaðarfullu starfsfólki sem leggur metnað sinn í að bjóða besta mögulega lax frá Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa alls um 130 manns og eru höfuðstöðvar þess á Ísafirði. Félagið er að 54% hlut í eigu Mowi ASA og 36% hlut í eigu Síldarvinnslunnar á Neskaupstað.
Móðurfélag Arctic Fish, Mowi ASA er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki með höfuðstöðvar í Bergen í Noregi, en félagið er stærsti framleiðandi eldislax í heiminum. Mowi ASA starfar í meira en 20 löndum og framleiðir um fimmta hvern lax sem seldur er í heiminum eða um 600.000 tonn á ári. Félagið hefur fengið viðurkenningu sem sjálfbærasti próteinframleiðandi í heimi og var á lista Times yfir 500 sjálfbærustu fyrirtæki í heimi árið 2025.

Sérfræðingur á fjármálasviði (Financial Controller)
Arctic Fish óskar eftir að ráða sérfræðing á fjármálasviði til að starfa á skrifstofu fyrirtækisins á Ísafirði. Við leitum að öflugum aðila til að taka þátt í skemmtilegum og krefjandi verkefnum í lifandi, alþjóðlegu umhverfi. Sérfræðingur í fjármálum starfar fyrst og fremst við reikningshald, skýrslugerð og kostnaðareftirlit innan samstæðunnar og vinnur náið með Mowi erlendu móðurfélagi Arctic Fish.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna mánaðarlegar skýrslur og framkvæma gagnagreiningar fyrir yfirstjórn
- Vinna með mánaðarleg og ársfjórðungsleg uppgjör og tryggja að uppgjör séu í samræmi við stefnu og verkferla fyrirtækisins
- Yfirfara og greina fjárhagsskýrslur, bera kennsl á misræmi og gera tillögur að úrbótum
- Taka þátt í greiningum og fjárhagsáætlunargerð samstæðunnar
- Önnur fjölbreytt verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði fjármála, viðskiptafræða eða reikningshalds
- Reynsla af sambærilegu starfi og úr endurskoðun er kostur
- Þekking og skilningur á helstu reikningsskilareglum, fjárhagsgreiningum og endurskoðunarstöðlum
- Færni í bókhaldskerfum og Microsoft Excel, reynsla af PowerBI eða svipuðu er kostur
- Framúrskarandi greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
- Sjálfstæð vinnubrögð og leiðtogahæfni
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur9. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Skrifstofustjóri
Stekkjaskóli

Sérfræðingur í hagdeild
Norðurál

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT Bókað ehf á Sauðárkrók
ECIT ehf.

Leitum að öflugum bókara til liðs við okkur
Six Rivers Iceland ehf.

Deildarstjóri þjónustudeildar á Norðursvæði
Vegagerðin

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Fjármála- og stjórnsýslusvið – Forstöðumaður reikningshalds
Reykjanesbær

Ert þú upprennandi endurskoðandi?
PwC

Viðskiptastjóri á sviði viðskiptavina
Eik fasteignafélag hf.

Sumarstarf í bókhaldi
Nathan hf.

Bókvís ehf. / Atvinna - bókhald
Bókvís ehf

Rekstrarstjóri
Malbikstöðin