Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins
Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins

Kerfisstjóri

Viltu vinna með nýjustu skýjalausnir og taka þátt í rekstri mikilvægra upplýsingakerfa?

Kerfisstjóri

Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða kerfisstjóra til starfa. Við óskum bæði eftir reyndum sérfræðingum og metnaðarfullum einstaklingum sem vilja þróast í faginu.

Sem kerfisstjóri hjá Umbru verður þú hluti af teymi sem ber ábyrgð á stöðugum og öruggum rekstri, ásamt framþróun upplýsingatækniþjónustu fyrir ráðuneyti og aðra ríkisaðila. Við erum í spennandi vegferð við að auka samrekstur, bæta tæknilega innviði og skapa umhverfi sem styður við aukna sjálfvirkni og samvinnu hjá ríkisaðilum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Rekstur og viðhald skýjalausna og staðbundinna kerfa

· Innleiðing nýrra kerfa og lausna (m.a. öryggislausna frá Microsoft) 

· Eftirlit með kerfum ásamt atvikastjórnun og bilanagreiningu

· Aðstoð við lausn tæknilegra atvika og þjónustubeiðna

· Þátttaka í teymisvinnu við þróunar- og umbótaverkefni 

Menntunar- og hæfniskröfur

· Menntun í tölvunarfræði, kerfisfræði eða á tengdu sviði

· Reynsla af kerfisrekstri, skýjalausnum og öryggismálum er kostur

· Þekking á Microsoft 365 skýjalausnum

· Öguð vinnubrögð og rík öryggisvitund

· Metnaður til að ná árangri og hæfni til að tileinka sér nýjungar og breytingar

· Góð samstarfshæfni

· Rík þjónustulund og skipulagshæfni

· Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti

Hvað við bjóðum

· Fjölbreytt og krefjandi verkefni

· Tækifæri til að vinna með nýjustu skýja- og öryggislausnir

· Traust og sveigjanlegt vinnuumhverfi

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.  Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skuggasund 1 , 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Tölvunarfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar