

Starfsmaður á rekstrarvakt RB
Við leitum að áhugasömum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á rekstri tölvukerfa, vöktun og ekki síst öryggismálum. Rekstrarvakt RB gegnir lykilhlutverki bæði í rekstrarvöktun (NOC) og öryggisvöktun (SOC), þar sem fylgst er með kerfum RB og annarra fjármálafyrirtækja allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Starfsfólk hópsins vinnur á vöktum og sinnir virku eftirliti með rekstrar- og öryggisatburðum, greinir frávik og bregst hratt og faglega við uppákomum í fjármálakerfinu með það að markmiði að tryggja stöðugleika, öryggi og áreiðanleika þjónustunnar.
Um er að ræða frábært fyrsta starf, til dæmis fyrir tölvunarfræðing með áhuga á upplýsingatækni og netöryggi, sem veitir góð tækifæri til starfsþróunar innan RB.
Helstu verkefni:
- Vöktun, greining og viðbrögð við rekstrar- og öryggisatburðum (NOC/SOC)
- Þátttaka í fyrstu viðbrögðum við öryggisatvikum og eftirfylgni þeirra
- Samskipti og samvinna við aðra hópa innan og utan fyrirtækis
- Regluleg verkefni, svo sem prófanir á tvöföldun kerfa, skýrslugerð og eftirlit með vinnslum
- Þátttaka í umbótaverkefnum sem snúa að vöktun, greiningu og viðbragðsferlum
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur (t.d. tölvunarfræði, kerfisfræði eða tengt)
- Áhugi á netöryggi, netþjónum, netkerfum og gagnagrunnum
- Þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
- Næmni fyrir smáatriðum og góð yfirsýn
- Hæfni til að vinna undir álagi þegar þess þarf
- Gott vald á íslensku og ensku
Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur, hvetjum við þig samt sem áður til þess að sækja um, þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að í þetta eða annað starf.
RB er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður með sterka vinnustaðamenningu þar sem lögð er áhersla á að starfsfólk fái tækifæri til að læra og þróast í starfi.
Höfuðstöðvar RB eru á Dalvegi 30 í björtu og hlýlegu húsnæði þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Starfsánægja í RB hefur verið há um árabil og endurspeglar metnað fyrirtækisins til að hlúa vel að starfsfólki.
RB hefur hlotið jafnlaunavottun og leggur áherslu á launajafnrétti og jafnrétti kynjanna í einu og öllu.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2026.
Nánari upplýsingar veitir Ingvi Ágústsson, forstöðumaður rekstrarstýringar, [email protected]
Íslenska










