
Forstöðumaður UT reksturs
Viltu leiða upplýsingatæknirekstur stærstu verslunarsamstæðu Íslands?
Hagar óska eftir að ráða öflugan leiðtoga til að taka ábyrgð á upplýsingatæknirekstri samstæðunnar.
Hagar gegna lykilhlutverki í daglegu lífi fólks, en undir hatti Haga starfa fyrirtæki á borð við Bónus, Hagkaup, Olís, Eldum rétt, Bananar, Stórkaup o.fl. með yfir 100 staðsetningar um allt land.
Á hverjum degi styðja upplýsingatæknikerfi Haga við rekstur verslana, vöruhúsa, dreifikerfa, netverslana og þjónustustöðva á Íslandi. Rekstur þessara kerfa er einn af grunnþáttum í starfsemi samstæðunnar.
Við leitum að einstaklingi sem vill leiða rekstur þessara innviða og þróa þá áfram í takt við vaxandi tæknikröfur framtíðarinnar.
Hlutverkið:
Sem forstöðumaður UT reksturs berð þú ábyrgð á rekstri og framþróun tæknilegra innviða Haga og dótturfélaga þeirra.
Þú munt leiða teymi sérfræðinga og birgja sem sjá um þá innviði sem halda uppi daglegum rekstri verslana, vöruhúsa, dreifingar og stafrænnar þjónustu samstæðunnar.
Í starfinu munt þú meðal annars:
- Bera ábyrgð á rekstri upplýsingatæknikerfa Haga og dótturfélaga.
- Leiða rekstur netinnviða (LAN/WAN) samstæðunnar.
- Stýra rekstri sýndarumhverfa og netþjónainnviða (t.d. VMware).
- Tryggja stöðugan rekstur gagnavera, netkerfa og miðlægrar þjónustu.
- Setja upp og viðhalda vöktun á rekstrarinnviðum.
- Tryggja afkastagetu, rekstraröryggi og rekstrarsamfellu kerfa.
- Leiða umbætur og framþróun í rekstri tæknilegra innviða.
- Stýra samstarfi við birgja, þjónustuaðila og verktaka.
Auk þess að vera reynslumikill leiðtogi með sterkan bakgrunn í rekstri upplýsingatækni er mikilvægt að þú hafir:
- Reynslu af rekstri flókins upplýsingatækniumhverfis.
- Reynslu af leiðtogahlutverki í tækniteymum.
- Góða þekkingu á rekstri netkerfa, netþjóna og skýjainnviða.
- Reynslu úr umhverfi þar sem stöðugleiki, afkastageta og áreiðanleiki kerfa eru lykilatriði.
- Getu til að vinna þvert á skipulagsheildir og styðja við rekstur fyrirtækisins.
Það er kostur ef þú hefur reynslu úr stórum rekstrarumhverfum, til dæmis í smásölu, fjármálum eða annarri starfsemi sem krefst þess að kerfin séu tiltæk allan sólarhringinn.
Þetta er tækifæri til að:
- Leiða rekstur tæknilegra grunninnviða einnar stærstu verslunarsamstæðu landsins.
- Takast á við verkefni í fremstu röð í upplýsingatækni.
- Vinna með framsæknu teymi sérfræðinga.
- Vinna náið með leiðandi tæknibirgjum og samstarfsaðilum.
- Hafa raunveruleg áhrif á áframhaldandi þróun upplýsingatækni innan Haga.
- Vera í stöðu þar sem þú raunverulega hreyfir nálina og hefur sýnileg áhrif á rekstur samstæðunnar.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og verður þeim svarað að ráðningu lokinni.
Íslenska
Enska










