Veitur
Veitur
Veitur

Deildarstjóri Viðskiptatengsla

Vilt þú leiða þjónustu og viðskiptatengsl sem skapa betri upplifun fyrir viðskiptavini Veitna?

Veitur leita að öflugum og framsýnum leiðtoga til að taka að sér starf deildarstjóra viðskiptatengsla í tímabundnu starfi til u.þ.b. eins árs vegna fæðingarorlofs.

Sem deildarstjóri viðskiptatengsla leiðir þú nýja og mikilvæga deild á þjónustusviði sem gegnir lykilhlutverki í að efla upplifun viðskiptavina, styrkja tengsl við viðskiptavini og þróa stafrænar þjónustulausnir sem einfalda fólki lífið.

Deildin sameinar undir einum hatti viðskiptastýringu, þjónusturáðgjöf (þjónustuver) og þróun stafrænna þjónustuleiða. Hlutverk hennar er að tryggja markviss samskipti, góða úrlausn erinda og áframhaldandi þróun þjónustu sem styður við stefnu Veitna um ánægðari viðskiptavini, meiri skilvirkni og sterkari þjónustumenningu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða deild viðskiptatengsla með skýra sýn á þjónustu, upplifun viðskiptavina og árangur, ásamt markvissri stjórnun mannauðs og rekstri deildarinnar
  • Tryggja markvissa stjórnun viðskiptatengsla við sveitarfélög, uppbyggingar- og þróunarfélög og aðra lykilviðskiptavini.
  • Tryggja markvissa stjórnun þjónusturáðgjafar og árangursríkt samtal og úrlausn erinda viðskiptavina
  • Styðja við árangursríkt samtal og trausta úrlausn erinda með fókus á góða þjónustu og skilvirkni.
  • Leiða þróun þjónustunnar í takt við þarfir viðskiptavina og stefnu Veitna um aukna sjálfsafgreiðslu og einfaldari þjónustuleiðir.
  • Vinna þvert á svið og tengja saman rekstur, þjónustu og þróun til að ná betri árangri fyrir viðskiptavini og fyrirtækið.
  • Byggja upp öflugt teymi þar sem fagmennska, samvinna, ábyrgð og traust eru í forgrunni.
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að manneskju sem:

  • Hefur reynslu af stjórnunar- og leiðtogastörfum, helst í þjónustu, rekstri eða öðru sambærilegu umhverfi.
  • Hefur sterkan skilning á þjónustu, upplifun viðskiptavina og mikilvægi góðra samskipta.
  • Er skipulögð, lausnamiðuð og á auðvelt með að halda yfirsýn í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.
  • Hefur hæfni til að leiða breytingar, forgangsraða og hrinda umbótum í framkvæmd, ásamt hæfni í að byggja upp árangursríka liðsheild.
  • Á auðvelt með að vinna með ólíkum hagaðilum og skapa traust í samskiptum.
  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Umhverfi þar sem þú hefur áhrif

Þetta er tækifæri til að leiða nýja deild sem hefur bein áhrif á hvernig viðskiptavinir upplifa þjónustu Veitna. Í starfinu færð þú tækifæri til að móta verklag, efla tengsl við lykilviðskiptavini og leiða þróun á þjónustuleiðum sem skipta samfélagið máli.

Þú verður hluti af metnaðarfullu þjónustusviði þar sem markmiðið er að gera góða þjónustu enn betri með markvissum viðskiptatengslum, árangursríku samtali og stafrænum lausnum sem styðja við þarfir viðskiptavina.

Af hverju Veitur?

Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tengir samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.

Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja www.veitur.is/vinnustadurinn

Aðrar upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Halldóra Hinriksdóttir forstöðukona Þjónustu hjá Veitum, [email protected]

Auglýsing birt9. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar