Heilbrigðisráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið

Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. júní 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sjúkrahúsið á Akureyri starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði sem og almenna sjúkrahúsþjónustu í sínu umdæmi. Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði menntunar heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og lögum samkvæmt varasjúkrahús Landspítala. Að jafnaði eru tæplega 700 manns starfandi á SAk.

Forstjóri ber ábyrgð á að Sjúkrahúsið á Akureyri starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015  og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist í starfi. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum er skilyrði.
  • Þekking og reynsla af stjórnun á rekstri í heilbrigðisþjónustu er mikilvæg.
  • Þekking og reynsla af áætlunargerð og fjármálum hins opinbera er æskileg.
  • Farsæl reynsla af stjórnun mannauðsmála er kostur.
  • Reynsla af stefnumótun í heilbrigðisþjónustu er kostur.
  • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skýr framtíðarsýn fyrir starfsemi sjúkrahússins og heilbrigðiskerfið.
  • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Eyrarlandsvegi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar