

Forstöðumanneskja Innkaupa
Sem forstöðumanneskja Innkaupa berð þú ábyrgð á stefnu, uppbyggingu og árangri einingarinnar. Þú munt leiða teymi sérfræðinga sem sinnir innkaupum, útboðum, samningastjórnun, birgðastýringu og vöruhýsingu fyrir félög Orkuveitunnar. Þú verður hluti af stjórnendateymi Fjármálasviðs félagsins og tekur virkan þátt í mótun stefnu og forgangsröðun innan sviðsins, auk þess að styðja við markmið Orkuveitunnar í heild.
Við leitum að manneskju sem hefur náð umtalsverðum árangri í stjórnunarhlutverki, hefur næmt auga fyrir tækifærum til umbóta í innkaupaferlum og nýtur þess að vinna með fjölbreyttum hópi samstarfsaðila. Mikilvægt er að viðkomandi sé lausnamiðuð, búi yfir sterkri samskiptafærni og hafi metnað til að efla fagmennsku í innkaupum og þróa skilvirka og gagnsæja verkferla
-
Mótun og innleiðing innkaupastefnu í samræmi við markmið Orkuveitunnar
-
Yfirumsjón með útboðum og samningagerð
-
Tryggja að innkaup uppfylli lög og reglur um opinber innkaup
-
Greining og hagræðing í aðfangakeðju
-
Samskipti og samstarf við birgja og hagaðila
-
Leiðtogahlutverk og ábyrgð á uppbyggingu og þróun innkaupateymis
-
Farsæl reynsla af stjórnun og leiðtogahlutverki
-
Hæfni til að efla starfsfólk og skapa sterka liðsheild
-
Reynsla af innkaupum, útboðum og samningastjórnun
-
Þekking á regluverki um opinber innkaup er kostur
-
Sterk greiningar og samskiptafærni
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Íslenska
Enska






