

Orkuveitan leitar að sérfræðingi í boreftirliti
Orkuveitan vinnur markvisst að því að tryggja lífsgæði til framtíðar með ábyrgri og sporléttri nýtingu jarðhitaauðlinda. Metnaðarfullar rannsóknir standa nú yfir á nýjum og núverandi jarðvarmasvæðum með það að markmiði að styrkja hitaveituforða, auka raforkuframleiðslu og skapa traustan grunn fyrir vaxandi samfélag.
Orkuveitan leitar því að reynslumiklum og metnaðarfullum sérfræðingi í boreftirliti sem vill taka virkan þátt í þessari vegferð. Viðkomandi starfar sem fulltrúi Orkuveitunnar á borstað og ber ábyrgð á því að boranir fari fram með öruggum, skilvirkum og faglegum hætti í samræmi við kröfur um öryggi, umhverfi og gæði.
Starfið heyrir undir Nýja orkukosti hjá Rannsóknum og nýsköpun og felur í sér náið samstarf við verktaka, þjónustuaðila og starfsfólk Orkuveitunnar.
- Fara með heildareftirlit með framkvæmd borana fyrir hönd Orkuveitunnar á vettvangi.
- Tryggja að boranir fari fram í samræmi við kröfur um heilsu, öryggi, umhverfi og gæði (QHSE).
- Stýra og leiðbeina daglegri framkvæmd í samstarfi við verktaka og þjónustuaðila.
- Fylgja eftir boráætlunum, tæknilegum lausnum og framkvæmd lykilþátta.
- Tryggja vandaða skráningu, utanumhald gagna og framvindu verkefna.
- Hafa yfirsýn yfir búnað, efni og aðföng á borstað og tryggja að viðhald og notkun sé í samræmi við samninga.
- Taka þátt í atvikagreiningu, úrbótavinnu og stöðugum umbótum í framkvæmd.
- Veita leiðbeiningar í neyðartilvikum og taka þátt í neyðar- og BOP-æfingum.
- Haldbær verkleg reynsla af borunum hjá borverktaka eða þjónustufyrirtæki.
- Reynsla af eftirlits-, stjórnunar- eða leiðtogahlutverki er kostur.
- Sterkur tæknilegur skilningur á bortækni, búnaði og verklagi.
- Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður.
- Mjög góð samskiptafærni og góð tök á íslensku og ensku.
- Sjálfstæði, fagmennska og hæfni til að leiða með góðu fordæmi.
- Háskólamenntun í verk- eða tæknifræði er æskileg eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Enska
Íslenska










