Hveragerðisbær
Hveragerðisbær
Hveragerðisbær

Forstöðumaður sundlaugarinnar Laugarskarði

Leiðtogi óskast til að leiða starfsemi í fallegustu sundlaug landsins

Hveragerðisbær auglýsir starf forstöðumanns sundlaugarinnar Laugarskarði

Forstöðumaður ber ábyrgð á starfsemi sundlaugarinnar, skipuleggur daglega starfsemi og fer með mannaforráð. Staða forstöðumanns fellur undir nýtt svið mennta, menningar og lýðheilsu hjá Hveragerðisbæ. Forstöðumaður tekur þátt í stefnumótun þeirra mála sem snerta starfsemi sundlaugarinnar innan sviðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Daglegur rekstur og skipulag á starfsemi sundlaugar
  • Ábyrgð á málefnum starfsfólks sundlaugar m.a. ráðning starfsfólks, vaktaskipulag o.fl.
  • Samskipti við stjórnendur og starfsfólk annarra stofnanna sem nýta þjónustu sundlaugar.
  • Ábyrgð og eftirlit á öryggismálum og gæðaeftirliti skv. gildandi reglugerðum og starfsemi sundlaugarinnar og samskipti við efirlitsaðila.
  • Þátttaka í áætlunargerð í starfseminni s.s. fjárhagsáætlunargerð og annarri stefnumótunarvinnu.
  • Þróun og umbætur í þjónustu og starfsemi sundlaugarinnar
  • Gert er ráð fyrir að forstöðumaður sinni vöktum sem sundlaugarvörður.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa lokið viðurkenndu skyndihjálparnámskeiði og endurlífgun (CPR) og standast hæfnipróf laugavarða sbr. reglugerð fyrir sundstaði.
  • Æskilegt er að umækjandi hafi reynslu af starfsmannahaldi og sé lausnamiðaður og úrræðagóður.
  • Þekking umsækjenda á lögum og reglugerðum er varða starfsemi sundlauga er kostur.
  • Umsækjandi skal hafa góða íslenskukunnáttu, góða tölvukunnáttu og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
  • Mikilvægt er forstöðumaður hafi hæfni og getu til að bregðast við ófyrirséðum aðstæðum.
  • Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum er mikilvægur eiginleiki.

Um er að ræða 100% starf. Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2026.

Hreint sakavottorð er skilyrði.

Nánari upplýsingar veitir Elfa Birkisdóttir sviðstjóri: [email protected]

Umsóknum skal skilað hér rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar

ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.

Auglýsing birt9. mars 2026
Umsóknarfrestur27. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðamörk 20, 810 Hveragerði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar