
Intellecta
Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði. Ráðningarsvið Intellecta sinnir ráðningum stjórnenda og sérfræðinga bæði fyrir opinberar stofnanir og einkamarkaðinn. Þá sinnir sviðið einnig mannauðsráðgjöf og ráðgjöf til einstaklinga í atvinnuleit.
Á næstunni flytjum við í nýtt og glæsilegt húsnæði að Höfðabakka 9, þar sem boðið verður upp á fyrsta flokks vinnuaðstöðu. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.intellecta.is.

Bókari
Viðskiptavinur Intellecta óskar eftir að ráða öflugan og nákvæman einstakling í tímabundið starf bókara til að minnsta kosti tveggja ára, með möguleika á áframhaldandi starfi. Í boði eru fjölbreytt verkefni á góðum vinnustað og þarf viðkomandi að geta starfað sjálfstætt, búa yfir ríkri þjónustulund og hafa góða samskiptahæfileika.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Færsla bókhalds og gerð reikninga
- Innheimta, uppgjör og afstemmingar
- Undirbúningur launavinnslu
- Skýrslugerð, gagnaöflun og úrvinnsla gagna
- Samskipti við hagaðila og viðskiptavini
- Önnur tilfallandi skrifstofustörf
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. viðskiptafræði, hagfræði eða tengdum greinum
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi er kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt hugarfar
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Gott vald á íslensku og ensku
- Góð Excel kunnátta æskileg
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2026, en unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511-1225.
Auglýsing birt14. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingGagnagreiningLaunavinnslaMannleg samskiptiReikningagerðUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri (e. Senior Sales Success)
Linde Gas

Gagnasérfræðingur með áherslu á gagnavísindi og AI
Festi

Blaðamaður á Viðskiptablaðinu
Viðskiptablaðið

Bókari
Veritas

Tæknilegur bókari óskast!
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Bókari
Rafholt ehf.

Bókhald
Hagvangur

Sérfræðingur í ársreikningagerð, uppgjörum og skattskilum
Grant Thornton

Digital Project Manager & Business Analyst
Air Atlanta Icelandic

Ráðgjafi í Fjármálaráðgjöf Deloitte
Deloitte

Ráðgjafi með áherslu á fjárhagslegar áreiðanleikakannanir
Deloitte

Ráðgjafi með áherslu á kaup- og söluferli fyrirtækja
Deloitte