Akureyri
Akureyri
Akureyri

Fjársýslusvið: Sumarstarf í bókhaldsdeild

Elskar þú tölur eða vilt öðlast færni og reynslu í bókhaldi og kynnast opinberri stjórnsýslu?

Fjársýslusvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða metnaðarfullan, talnaglöggan og lærdómsfúsan einstakling í sumarafleysingar.

Ráðið er í starfið frá miðjum maí til ágústloka 2026, en tímabilið er þó umsemjanlegt. Vinnutími er sveigjanlegur, 7,2 klst á dag, en föst viðvera er frá klukkan 9-15 virka daga.

Starfið er tilvalið fyrir manneskju sem vill öðlast þekkingu og reynslu í bókhaldi, fjármálum og opinberri stjórnsýslu, s.s. háskólanema í viðskiptafræði eða einstaklinga með áhuga á bókhaldi.

Fjársýslusvið Akureyrarbæjar tekur á móti tæplega 70.000 reikningum á ári, þjónustar allar stofnanir bæjarins auk fyrirtækja í eigu sveitarfélagsins. Hér gefst því gott tækifæri til að kynnast af eigin raun starfsemi á fjársýslusviði í stóru fyrirtæki með fjölbreytta starfsemi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bókun reikninga í SAP fjárhagsbókhaldskerfi.
  • Móttaka rafrænna reikninga.
  • Verkefni tengd sjálvirknivæðingu í bókhaldi.
  • Ýmis tilfallandi bókhaldsstörf eftir hentugleikum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun er krafa.
  • Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi áhuga á bókhaldsstörfum.
  • Nám á sviði bókhalds og fjármála er æskileg, t.d. úr framhaldsskóla eða háskóla. 
  • Góð tölvukunnátta er skilyrði og áhugi á að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð.
  • Góð og hagnýt þekking á excel er skilyrði.
  • Þekking á bókhaldskerfum er kostur.
  • Mikilvægt er að viðkomandi sé talnaglöggur, vandvirkur, agaður og sjálfstæður í vinnubrögðum.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta, í ræðu og riti. 
  • Góð enskukunnátta.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt9. apríl 2026
Umsóknarfrestur23. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar