

Glerárskóli: Starfsfólk í íþróttahúsi með stuðning
Í Glerárskóla á Akureyri eru lausar tvær 70% stöður starfsfólks í íþróttahúsi með stuðning. Ein staða fyrir karlmann og ein staða fyrir kvenmann. Ráðið verður í störfin frá 1. ágúst 2026 til 18. júní 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Möguleiki er á starfi í frístund til viðbótar við starfið.
Frá 1. ágúst til og með 20. ágúst 2026 mun starfsfólk starfa að fullu í ágústfrístund.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu. Glerárskóli er Erasmus+ vottaður skóli.
Glerárskóli er hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingum sem eiga auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hafa mikinn metnað, eiga auðvelt með öll samskipti og sem leggja áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
- Gæsla og stuðningur við nemendur í íþróttamannvirki og búningsklefum íþróttamannvirkis
- Að fylgjast með samskiptum og taka samstundis á ágreiningi, áreitni og ofbeldi og vísa málum í réttan farveg, s.s. til kennara eða stjórnenda
- Stuðningur við nemendur í íþróttatímum undir verkstjórn íþróttakennara í því skyni að stuðla að þátttöku, færni og sjálfstæði nemenda
- Sinnir minniháttar meiðslum og óhöppum nemenda þegar þess þarf.
- Leiðbeinir nemendum um framkomu og hegðun samkvæmt uppeldis- og agastefnu skólans
- Situr fag-, samstarfs- og foreldrafundi eftir því sem við á
- Að fylgja nemanda/nemendum í dags- og vettvangsferðir
- Fylgd og eftirlit í styttri ferðum vegna skólastarfs
- Umsjón og gæsla í kaffi- og matartíma
- Frímínútnagæsla og almennt eftirlit með nemendum í skólahúsnæði
- Önnur störf sem kennari og/eða stjórnandi felur viðkomandi
- Áhugi á að starfa með börnum er skilyrði
- Starfsreynsla innan skólakerfis er æskileg
- Að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði
- Sveigjanleiki í starfi, stundvísi, jákvæðni og færni í samskiptum
- Kunnátta í skyndihjálp er skilyrði
- Samviskusemi og reglusemi
- Góð íslenskukunnátta
- Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
- Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni
- Ýmiskonar hæfileikar, menntun og/eða þekking sem getur auðgað skólastarfið
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu
Íslenska










