
Varmárskóli
Varmárskóli leggjur upp með gildi Mosfellsbæjar, virðingu, jákvæðni, framsækni og umhyggju.
Í Varmárskóla er lagt upp með að skapa námsumhverfi sem er hvetjandi og þroskandi. Leitast er við að koma til móts við einstaklinginn á hans forsendum og efla með honum áhuga á námi og sjálfstæði í vinnubrögðum. Við skólann eru starfandi námsver. Þar er leitast við að bjóða uppá úrræði sem henta hverjum og einum skjólstæðingi versins í samráði við umsjónarkennara, sérkennara, þroskaþjálfa og stuðningsfulltrúa.
Lögð er áhersla á að horfa á árganginn í heild í stað einstakra bekkja. Á yngri stigum er samvinna námshópa innan og utan árganga og kennarar starfa mikið saman í samþættingarverkefnum og smiðjum. Á eldra stigi er áhersla á faggreinakennslu og nemendum ýmist kennt í bekkjum eða hópum.
Öflug list- og verkgreinakennsla er við skólann og eru verk nemenda sýnileg á göngum skólans.
Skólanámskrá er endurskoðuðr af kennurum skólans á hverju ári. Námskráin er rituð fyrir nemendur, foreldra og aðra sem vilja kynna sér stefnu og skipulag skólans.

Frístundaleiðbeinandi í Varmárskóla
Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarfstarf með börnum í 1.-4.bekk
Um sumarstarf er að ræða en möguleiki er á áframhaldandi starfi í vetur. Sumarfrístund er starfrækt 11.-26.júní og 10.-21.ágúst. Vinnutíminn í sumarfrístund er kl. 08:00-16:00.
Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk. Vinnutími er kl. 13:10-16:00/16:30 virka daga á veturna.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur fyrir starfsemina hverju sinni og tiltekt að henni lokinni.
- Leiðbeina og tryggja þátttöku barnanna í starfi með styrk þeirra að leiðarljósi.
- Ýta undir leik, sköpun og lýðheilsu.
- Vinna gegn andfélagslegri hegðun og skapa öruggt umhverfi.
- Leysa úr ágreiningnum, leiðbeina samræðum barna, ýta undir vinsemd og styðja börnin í að eiga við tilfinningar sínar.
- Skapa lýðræðislegt umhverfi þar sem börnin eiga kost á því að tjá sig og hafa áhrif á starfsemina.
- Stíga inn í fjölbreytt hlutverk eftir þörfum og hæfni.
- Stýra smiðjum, yfirumsjón með valstöðum, fylgja á eftir viðveru og mætingu barna.
- Önnur hlutverk sem styðja við og eða bæta gæði starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Samskipta- og samvinnuhæfni.
- Jákvætt og lausnamiðað hugarfar.
- Sveigjanleiki og hjálpsemi.
- Þolinmæði og umhyggjusemi.
- Hæfni til þess að lesa í aðstæður.
- Tæknilæsi eða vilji til þess að nýta tækni í starfi.
- Hreint sakavottorð.
- Góð íslenskukunnátta.
- Lágmarks aldur 18 ára (eða að verða 18 ára á árinu).
Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFljót/ur að læraFrumkvæðiMannleg samskiptiSamviskusemiTeymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Kennarar – Leikskólinn Norðurberg
Hafnarfjarðarbær

Flokkstjóri í vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar
Eyjafjarðarsveit

Kennarar óskast á miðstig og yngsta stig í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í leikskólann Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Leikskólakennari í leikskólann Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Viltu breyta lífi barna? - Þorláksskóli
Þorláksskóli

Lágafellsskóli - umsjónarkennari á yngsta og miðstigi
Lágafellsskóli

Enskukennari í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli

Skólaliði - Hamraskóli
Hamraskóli

Höfuð-Borgin - sértæk félagsmiðstöð
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarf í Furugrund
Sumarstörf - Kópavogsbær

Flokkstjórar í Vinnuskóla Borgarbyggðar
Borgarbyggð