

Sumarstarfsmaður
Heilsuleikskólinn Ársól leitar að sumarstarfsmanni til vinnu. Vinnutími og tímabil er eftir samkomulagi. Leitað er að starfsmanni sem gæti hafið störf sem fyrst og unnið út ágúst. Leikskólinn er lokaður allan júlí.
Ársól er þriggja deilda ungbarnaleikskóli með um 54 börnum. Skólar ehf. er 25 ára gamalt félag sem rekur fjóra aðra heilsuleikskóla í sveitarfélögunum Garðabæ, Reykjanesbæ og Reykjavík. Allir leikskólar innan vébanda Skóla ehf. starfa í anda heilsustefnunnar sem hverfist um heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins.
Einkunnarorð okkar er "heilbrigð sál í hraustum líkama".
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Sólveigu Indíönu Guðmundsdóttir skólastjóra í tölvupósti [email protected] eða í síma 617-8996.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Tilbúinn að tileinka sér stefnu og starfsaðferðir skólans.
- Samvinnufús og hefur góða hæfni í samskiptum.
- Stundvís, samviskusamur, jákvæður, sýna frumkvæði og hafa ánægju af því að vinna með ungum börnum
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
- Leyfisbréf kennara eða önnur menntun sem að nýtist í starfi er æskileg
- Reynsla af leikskólastarfi er æskileg
- Áhugi á að vinna með börnum
- Færni í samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Lausnarmiðun
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Heilsuhvetjandi starfsumhverfi
- Samgöngustyrkur
- Viðverustefna
Íslenska










